
Húsasmiðjan
Húsasmiðjan er meðal stærstu verslunarfyrirtækja landsins og hluti af Bygma Gruppen A/S. Bygma rekur fjölmargar byggingavöruverslanir í Danmörku, Svíþjóð, Færeyjum og á Grænlandi. Ásamt því rekur fyrirtækið nokkur heildsölufyrirtæki á byggingavörumarkaði í Danmörku.
Húsasmiðjuverslanir eru 16 talsins og eru Blómavalsútibú í sjö þeirra. Jafnframt er rafiðnaðarverslunin Ískraft með fjögur útibú.
Hjá Húsasmiðjunni starfa um 500 starfsmenn vítt og breytt um landið sem hafa margskonar bakgrunn eins og pípari, blómaskreytir, bókari, smiður, viðskiptafræði, grafískur hönnuður, múrari og fleira og fleira.
Húsasmiðjan býður upp á lifandi starfsumhverfi og frábæran starfsanda. Við leggjum mikla áherslu á símenntun og fræðslu og að starfsmenn fái tækifæri til þess að eflast og þróast í starfi.

Fagsölusvið: Viðskiptastjóri í gluggadeild
Við leitum að öflugum og þjónustuliprum einstaklingi í starf viðskiptastjóra í gluggadeild á fagsölusviði Húsasmiðjunnar. Sala á gluggalausnum er vaxandi hluti af starfsemi fyrirtækisins og starfið felur í sér fjölbreytt samskipti við viðskiptavini ásamt miklu samstarfi við reynslumikið teymi deildarinnar.
Á fagsölusviði starfa öflugir og reynslumiklir einstaklingar sem þjónusta stærstu viðskiptavini Húsasmiðjunnar og aðra aðila í stærri framkvæmdum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ráðgjöf og sala til fagaðila, einstaklinga og verktaka
- Viðhald og uppbygging viðskiptasambanda
- Tilboðsgerð og eftirfylgni tilboða
- Samstarf við birgja og framleiðendur
Menntunar- og hæfniskröfur
- Þekking á gluggalausnum er kostur
- Reynsla af sölustörfum og þjónustu við fagaðila
- Nákvæmni, þjónustulund og góð samskiptahæfni
- Góð tölvukunnátta og færni í íslensku og ensku
Fríðindi í starfi
- Heilsuefling, s.s. heilsufarsskoðun, bólusetning, aðgangur að sálfræðiþjónustu, heilsueflandi fræðsla
- Aðgangur að orlofshúsum
- Ýmsir styrkir, s.s. íþróttastyrkur, samgöngustyrkur og fræðslustyrkur
- Afsláttarkjör í verslunum okkar
Auglýsing birt19. júní 2025
Umsóknarfrestur6. júlí 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn

Nauðsyn
Staðsetning
Kjalarvogur 12, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Dynamics AXMetnaðurSjálfstæð vinnubrögðSölumennskaViðskiptasamböndÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)

Byggingarstarfsmaður í framleiðslu á forsteyptum einingum - Construction worker
Einingaverksmiðjan

Ert þú söludrifinn einstaklingur?
Billboard og Buzz

Viðskiptastjóri
Securitas

Uppsetningar innréttinga
GKS innréttingar

Viðskiptastjóri
Icepharma

Langar þig að starfa við framkvæmdareftirlit?
EFLA hf

Verslunarstjóri Icewear
ICEWEAR

Fagsölusvið: Viðskiptastjóri byggingalausna
Húsasmiðjan

Fagsölusvið: Viðskiptastjóri í álgluggum og iðnaðar- og eldvarnarhurðum
Húsasmiðjan

Verkefnastjóri; Úttektir, eftirlit og ráðgjöf
VERKVIST

Við leitum að sterkum liðsmanni í byggingarvinnu!
Sólhús ehf

Sölu- og þjónustufulltrúi AVIS
Avis og Budget