

Verkefnastjóri; Úttektir, eftirlit og ráðgjöf
Ný og öflug verkfræðistofa leitar eftir kröftugu og metnaðarfullu fagfólki til framtíðarstarfa.
Við hjá VERKVIST leitum að drífandi og faglegum einstaklingi með reynslu af verkefnastýringu, ráðgjöf og eftirliti á framkvæmdum og við endurbætur. Ef þú brennur fyrir vönduðum vinnubrögðum, framúrskarandi lausnum og öflugu samstarfi – þá viljum við heyra frá þér!
Um starfið
Við leitum að öflugum liðsfélaga sem:
-
Hefur reynslu af eftirliti á byggingarframkvæmdum af fagmennsku og ábyrgð
-
Sinnir ráðgjöf til viðskiptavina og hönnunarteyma um hagkvæmar og traustar lausnir
-
Stýrir verkefnum af festu, heldur utan um framvindu og tryggir gæði í öllum verkhlutum
-
Leggur sitt af mörkum við þróun og nýsköpun innan fyrirtækisins
-
Leggur metnað í samstarf við verkkaupa, verktaka og aðra lykilaðila
-
Tekur þátt í þróun vinnuferla og framtíðarlausna innan VERKVIST
Úttektir og ástandsskoðanir
Eftirlit
Verkefnastjórn
Ráðgjöf
Verklýsingar og útboðsgögn
Ýmis önnur tilfallandi verkefni
Byggingarverkfræði, byggingarfræði, byggingartæknifræði, húsasmíðameistari eða sambærilegt
Reynsla af byggingarframkvæmdum og eftirlitsstörfum er skilyrði
Reynsla af verkefnastjórn og utanumhald verkefna
Góð samskiptahæfni og virðing fyrir samstarfi
Jákvæðni, sjálfstæði og vilji til að vaxa með verkefnunum
Frumkvæði og fagmennska
Við bjóðum upp á:
- Fjölbreytt og spennandi verkefni þar sem þú getur haft áhrif
- Umhverfi sem styður við bæði faglegan og persónulegan vöxt
- Virka liðsheild þar sem samstarf og stuðningur skipta máli
- Sveigjanleika, traust og jafnrétti í vinnuaðstæðum
- Fjölskylduvænan vinnustað
- Skemmtilegt og hvetjandi félagslíf – við fögnum litrófi lífsins líka utan vinnutíma
- Samkeppnishæf laun
- Heilsueflandi vinnustað
- Góða innivist á vinnustað













