

Vilt þú gæta að öryggi fjarskipta?
Við leitum að vöktunarfulltrúa í stjórnstöð okkar, sem hefur áhuga og þekkingu á fjarskiptum eða tækni. Starfið felst í eftirliti, fyrsta stigs bilanagreiningum og upplýsingamiðlun á stöðu fjarskiptakerfa í eigu Mílu og annarra aðila. Stjórnstöð Mílu er opin allan sólarhringinn og tryggir öryggi fjarskipta Íslendinga.
Um er að ræða vaktavinnu þar sem unnið er á dag-, kvöld- og næturvöktum.
- Vöktun á kerfum Mílu og viðskiptavina okkar
- Fyrsta stigs bilanagreining á sambandskerfum Mílu og viðskiptavina
- Stigun bilana á ábyrgðaraðila ásamt tilkynningum til viðskiptavina Kerfisvöktunar
- Nám sem tengist tækni kostur
- Þekking og reynsla af fjarskiptum er kostur
- Geta til að vinna í gegnum neyðarástand eins og víðtækt útfall
- Góð íslensku- og enskukunnátta bæði í rituðu og töluðu máli
- Góð samskiptahæfni og aðlögunarhæfni
- Hæfni til að vinna sjálfstætt og í hópi
- Skipulög og öguð vinnubrögð
Helstu kostir þess að starfa hjá Mílu:
🔋 Miðlægar starfsstöðvar í Reykjavík með hleðslustæði
🚲 Samgöngustyrkur til að styðja virka samgöngumáta
🚿 Hjólageymsla með rafmagni og aðgangur að sturtum
🥗 Mötuneyti á staðnum með salatbar og grænkerakostum
💪 Metnaðarfullt starfsumhverfi með möguleika á starfsþróun
🥳 Öflugt félagslíf á vegum starfsmannafélags og afþreyingarherbergi með billiard-borði












