Norðurál
Norðurál
Norðurál

Áreiðanleikafræðingur

Norðurál leitar að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi í starf áreiðanleikafræðings. Eitt af megin hlutverkum áreiðanleikafræðings er að vinna að fyrirbyggjandi aðgerðum til að halda bilunum í lágmarki með það að markmiði að auka áreiðanleika búnaðar með öryggi, skilvirkni og hagkvæmni að leiðarljósi. Verkefnin eru áhugaverð og krefjandi í lifandi starfsumhverfi þar sem metnaður og fagmennska eru í fyrirrúmi.

Starfið heyrir undir tæknisvið fyrirtækisins.

Helstu verkefni og ábyrgð

·       Gerð fyrirbyggjandi viðhaldsáætlana fyrir framleiðslubúnað

·       Rýni á viðhaldskerfi til að greina tækifæri til umbóta

·       Greining gagna, skýrslugerð og tölfræðileg úrvinnsla

·       Þróun lykilmælikvarða

·       Rótargreiningar á bilunum í búnaði

·       Tæknilegur stuðningur við undirbúning og lokaúttektir á nýjum búnaði

·       Gæðaeftirlit og tæknilegur stuðningur við verkáætlanadeild og viðhaldsteymi

Menntunar- og hæfniskröfur

·       Háskólamenntun á sviði verk- eða tæknifræði

·       Sveinspróf í raf- eða vélvirkjun kostur

·       Þekking á SAP tölvukerfi er kostur

·       Góð tölfræðikunnátta og greining gagna

·       Sterk öryggisvitund, frumkvæði og fagleg vinnubrögð

·       Jákvæðni og góðir samskiptahæfileikar

·       Skipulagsfærni og metnaður fyrir umbótum og gæðum

Auglýsing birt30. maí 2025
Umsóknarfrestur15. júní 2025
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Grundartangahöfn lóð 12, 301 Akranes
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn ökuréttindiPathCreated with Sketch.Almenn tæknikunnáttaPathCreated with Sketch.ÁætlanagerðPathCreated with Sketch.GagnagreiningPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SAPPathCreated with Sketch.Skipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar