

Vaktstjóri í kerskála
Norðurál leitar að metnaðarfullum og ábyrgum einstaklingi í starf vaktstjóra í kerskála. Unnið er á 8 tíma vöktum, dag-, kvöld-, og næturvöktum (fimm daga vinna/fimm daga frí). Verkefnin eru fjölbreytt og krefjandi í starfsumhverfi þar sem metnaður og fagmennska eru í fyrirrúmi.
Vaktstjóri heyrir undir framkvæmdastjóra kerskála.
· Stjórnun og umsjón með rekstri vaktar
· Eftirfylgni öryggismála
· Umsjón með mannauðsmálum vaktar
· Umsjón og eftirlit með tækjabúnaði
· Þátttaka í stefnumótun
· Menntun sem nýtist í starfi
· Leiðtogahæfni og reynsla af stjórnun
· Jákvæðni og góð samskiptafærni
· Sterk öryggisvitund, frumkvæði og fagleg vinnubrögð
· Góð íslensku- og enskukunnátta
· Góð tölvukunnátta og þekking á helstu hugbúnaðarkerfum (Word, Excel, Outlook og Powerpoint)











