Reiknistofa bankanna
Reiknistofa bankanna
Reiknistofa bankanna

Sérfræðingur í innlána- og greiðsluteymi

Langar þig að taka þátt í mótun og þróun fjármálaþjónustu framtíðarinnar?

RB leitar að öflugum og áhugasömum sérfræðingi í teymi innlána- og greiðslna sem hefur ástríðu fyrir þróun á sviði greiðslumiðlunar. Teymið þjónustar helstu banka landsins með rekstri og vöruþróun á hugbúnaðarlausnum fyrir innlán og greiðslur, auk þess að sinna stuðningi við mikilvæg kjarnafjárhagskerfi í samstarfi við erlendan hugbúnaðarbirgi.

Helstu verkefni:

  • Þátttaka í verkefnavinnu með þróunarteymi og viðskiptavinum

  • Samvinna við viðskiptavini um innleiðingu nýrra lausna og breytinga á þjónustu

  • Skilgreining á kröfum, ferlum og virkni lausna út frá þörfum viðskiptavina

  • Eftirfylgni og leiðtogahlutverk í tilteknum verkefnum

  • Greining og úrlausn vandamála

Hæfnikröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. í viðskiptafræði, tölvunarfræði eða tengdu sviði

  • Reynsla af greiningarvinnu , verkefnastýringu eða vörustýringu

  • Hæfni til að skilja og miðla flóknum viðfangsefnum á skýran hátt

  • Sjálfstæði í vinnubrögðum og hæfni til að leiða teymisvinnu og verkefni

  • Góð innsýn í greiðslumiðlun og/eða innlánsstarfsemi er kostur

  • Reynsla af hugbúnaðargerð er kostur

Hvers vegna RB?

RB er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður með sterka vinnustaðamenningu þar sem áhersla er á að starfsfólk fái að læra og vaxa í starfi. Við vinnum að þróun og rekstri mikilvægra innviðalausna fyrir íslenskt fjármálakerfi og leggjum metnað í vandað samstarf, framúrskarandi þjónustu og tæknilega þróun.

Höfuðstöðvar RB eru á Dalvegi 30 í nútímalegu og hlýlegu húsnæði með frábærri aðstöðu. RB hefur hlotið jafnlaunavottun og er fjölskylduvænn vinnustaður með sveigjanlega fjarvinnustefnu.

Umsóknarupplýsingar:

Ef þú hefur áhuga á starfinu en uppfyllir ekki allar kröfur hvetjum við þig samt sem áður til að sækja um – þú gætir verið rétti aðilinn fyrir okkur.

Öll kyn eru hvött til að sækja um.

Umsóknarfrestur er til og með 15. júní 2025.

Umsóknum þarf að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir því hvers vegna þú ættir að verða fyrir valinu.

Nánari upplýsingar veitir Halldóra G. Steindórsdóttir, forstöðumaður, á netfanginu [email protected]

Farið er með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál.

Auglýsing birt30. maí 2025
Umsóknarfrestur15. júní 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Dalvegur 30, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar