Hrafnista
Hrafnista
Hrafnista

Hjúkrunardeildarstjóri - Hrafnista Nesvellir

Hrafnista Nesvöllum óskar eftir að ráða hjúkrunardeildarstjóra á nýja 40 íbúa hjúkrunardeild. Framundan eru spennandi tímar á Nesvöllum en í vetur fer heimilið úr einni deild með 60 íbúa í þrjár deildir með samtals 140.Stefnt er á að nýjar deildir verði teknar í notkun undir lok árs og leitum við því að öflugum leiðtoga til taka þátt í þessu krefjandi og jafnframt skemmtilega verkefni með okkur.


Við leitum að jákvæðum, lausnamiðuðum og drífandi leiðtoga sem hefur áhuga á að veita framúrskarandi og faglega þjónustu til handa íbúum heimilisins og aðstandendum þeirra.
Deildarstjóri er hluti af stjórnendahópi Hrafnistu.

Kostur er ef viðkomandi getur hafið störf í haust.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Deildarstjóri er leiðtogi í hjúkrun og þjónustu við íbúa á hjúkrunardeild.
  • Dagleg stjórnun og rekstur hjúkrunardeildar
  • Skipulag á störfum starfsfólks í samræmi við þarfir þjónustuþega
  • Ábyrgð á faglegri hjúkrun og gæðum í þjónustu
  • Skipulagning og þróun þjónustu í samvinnu við forstöðumann
  • Ráðgjöf, samskipti og fræðsla til íbúa og aðstandenda
  • Þverfagleg teymisvinna innan heimilis og þvert á Hrafnistu
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt hjúkrunarleyfi
  • Reynsla af stjórnun kostur
  • Reynsla af RAI mælitækinu kostur
  • Frumkvæði, jákvæðni og faglegur metnaður
  • Framúrskarandi samskiptahæfileikar
Fríðindi í starfi
  • Heilsuræktarstyrkur
  • Samgöngustyrkur með strætó
  • Stuðningur til framþróunar í formi leyfa á launum og námstyrkja
  • Við bjóðum upp á jákvæðan og skemmtilegan starfsanda, áhugaverð verkefni og starf sem er í sífelldri þróun.
Auglýsing birt24. júní 2025
Umsóknarfrestur6. júlí 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Njarðarvellir 2, 260 Reykjanesbær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar