

Hjúkrunarfræðingur við umsjón útskrifta á lyflækningadeild
Auglýst er eftir hjúkrunarfræðingi til starfa við skipulag og umsjón með útskrift sjúklinga lyflækningadeildar (B7) í Fossvogi.
Starfslutfall er 60%, um er að ræða dagvinnu virka daga og er starfið laust 1. janúar 2026 eða eftir nánara samkomulagi. Möguleiki er á starfi í hærra starfshlutfalli á deildinni, t.d. í vaktavinnu á móti umsjón með útskriftum.
Deildin er 22 rúma sólarhringsdeild ætluð sjúklingum með bráð vandamál á sviði lyflækninga. Á deildinni starfa um 70 einstaklingar í virku þverfaglegu samstarfi og unnið er markvisst að faglegri þróun. Starfsandi á deildinni er sérlega góður. Við tökum vel á móti nýju fólki og veitum einstaklingshæfða aðlögun. Áhugasömum er velkomið að hafa samband við Rut deildarstjóra.
Landspítali styður nýútskrifaða hjúkrunarfræðinga í starfi með markvissri handleiðslu og fræðslu, samhliða starfi í formi starfsþróunarárs Landspítala.
Íslenska
























































