

Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á skurðstofur Fossvogi
Við leitum eftir metnaðarfullum og framfarasinnuðum hjúkrunarfræðingi í starf aðstoðardeildarstjóra á skurðstofur í Fossvogi. Viðkomandi þarf að hafa áhuga á stjórnun og gæðamálum, búa yfir afburða samskiptahæfni og hæfni til að takast á við breytingar.
Aðstoðardeildarstjóri starfar náið með deildarstjóra ásamt öðrum aðstoðardeildarstjóra sem mynda þriggja manna stjórnendateymi. Aðstoðardeildarstjóri fylgir eftir ákvörðunum um skipulag starfseminnar og verklag á deild sem og innleiðingu nýjunga.
Deildin heyrir undir svið skurðlækninga-, skurðstofu- og gjörgæsluþjónustu. Á deildinni eru 8 skurðstofur sem þjóna 5 sérgreinum og árlega eru framkvæmdar þar um 6000 aðgerðir. Á deildinni starfa um 90 einstaklingar, hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar, sótthreinsitæknar, skrifstofufólk og sérhæft starfsfólk við fjölbreytt og krefjandi verkefni, sem unnin eru í nánu samstarfi við fagfólk í öðrum sérgreinum. Gagnreynd þekking, viðurkenndir verkferlar, öryggi sjúklinga og teymisvinna eru höfð í fyrirrúmi.
Í boði er einstaklingsaðlöguð þjálfun eftir þörfum hvers og eins á skemmtilegum vinnustað.
Starfshlutfall er 100% og unnið í dagvinnu og er starfið laust 1. febrúar 2026 eða eftir nánara samkomulagi.
Íslenska

























































