
Hjúkrunarfræðingar - Komið í lið með okkur!
Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) óskar eftir öflugum hjúkrunarfræðingum til að sinna störfum hjúkrunarmóttöku og/eða skólahjúkrun. Um er að ræða 50-100% ótímabundin störf og er æskilegt að viðkomandi getið hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi. Helstu verkefni eru á sviði heilsuverndar skólabarna, í hjúkrunarmóttöku ásamt öðrum verkefnum innan Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri.
Hjá stofnuninni starfar fjölbreyttur hópur fólks þar sem áhersla er lögð á teymisvinnu, samvinnu og samheldni. Rík áhersla er lög á vellíðan á vinnustað, samþættingu vinnu og einkalífs, símenntun, öryggi, gæði og fagmennsku.
HSN leggur jafnframt áherslu á heilsueflingu starfsfólks en Heilsugæslustöðin á Akureyri er heilsueflandi vinnustaður og var HSN fyrsta heilbrigðisstofnunin til að hefja innleiðingu á heilsueflandi vinnustað á landsvísu.
Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband og fá frekari upplýsingar um starfið.
Hjúkrunarfræðingur í heilsuvernd grunnskólabarna
- Eftirlit með andlegu, líkamlegu og félagslegu heilsufari nemenda
- Stuðningur, ráðgjöf og hjúkrunarmeðferð
- Heilbrigðisfræðsla og forvarnir
- Skráning, skýrslugerð og upplýsingamiðlun
- Teymisvinna
- Góð samvinna við fagaðila í heilsugæslu og skóla
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu og beiðni yfirmanns
Hjúkrunarfræðingur í hjúkrunarmóttöku
Hjúkrunarfræðingar sinna mikilvægu hlutverki í þverfaglegu teymi innan heilsugæslunnar og taka þátt í þróun á teymisvinnu
- Heilsueflandi þjónusta s.s. stuðningur og meðferð við sykursýki, offitu og öðrum langvinnum heilsuvanda
- Bráðaþjónusta: Hjúkrunarfræðingur vinnur í teymi með læknum á hjúkrunarvakt og á síðdegisvakt
- Aðgerðastofa: Þá sinna þeir bókuðum móttökum þar sem fjölbreytt hjúkrunarverk eru unnin s.s. lyfjagjafir, ónæmisaðgerðir, sárameðferð og margt fleira
- Blóðprufutökur
- Önnur fjölbreytt verkefni innan heilsugæslunnar
- Fullgilt hjúkrunarpróf og starfsleyfi
- Reynsla af heilsugæsluhjúkrun eða skólahjúkrun kostur
- Þekking og áhugi á forvarnar- og heilsueflingarstarfi
- Framúrskarandi samskiptahæfni, lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
- Sjálfstæði í starfi, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
- Frumkvæði og lausnamiðuðu nálgun í starfi
- Jákvæð reynsla á samvinnu og samstarf
- Jákvæð reynsla og/eða áhugi á teymisstarfi
- fagmennska og jákvæðni
- Íslenskukunnátta skilyrði
- Gott orðspor og hreint sakavottorð
Íslenska
Enska










