

Starf hjá Þjónustuveri Landspítala
Landspítali auglýsir laust til umsóknar starf hjá þjónustuveri spítalans. Starfið felst í símsvörun, netspjalli, almennum móttökustörfum og ritara- og skráningarverkefnum. Viðkomandi þarf að vera þjónustulipur, með góða samskiptahæfni og sjálfstæður í starfi, með góða tölvukunnáttu og fljótur að læra og tileinka sér hlutina. Góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf 2. janúar 2026.
Þjónustuver og móttökur heyra undir Fasteigna- og umhverfisþjónustu sem tilheyra Rekstrar- og mannauðssviði. Þjónustuver og móttökur er þjónustulunduð deild og starfa þar um 20 einstaklingar. Deildin sinnir annars vegar símsvörun og hins vegar móttökustörfum en saman vinnum við að fjölbreyttri og mikilvægri þjónustu við deildir, sjúklinga og gesti spítalans. Unnið er í náinni samvinnu við öryggisþjónustu innan vaktmiðstöðvar ásamt því að fylgjast með öryggis- og eftirlitskerfum spítalans. Starfsfólk starfar eftir þjónustustefnu þar sem markmiðið er að vera til fyrirmyndar í þjónustu. Við bjóðum gefandi starf hjá traustum vinnuveitanda, góðan starfsanda, gott mötuneyti og styttri vinnuviku.
- Símsvörun og upplýsingagjöf til viðskiptavina og starfsmanna Landspítala
- Almenn móttökustörf
- Svörun fyrirspurna og upplýsingagjöf í netspjalli
- Ýmis skráningarverkefni o.fl. verkefni fyrir deildir spítalans
- Önnur tilfallandi verkefni í samráði við teymisstjóra
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Framúrskarandi þjónustulund, jákvæðni og góð samskiptahæfni
- Góð almenn tölvukunnátta
- Önnur tungumálakunnátta kostur
- Lausnamiðuð nálgun
- Geta til að starfa sjálfstætt og í teymum
- Stúdentspróf er æskilegt
Íslenska
Enska














































