

Forstöðumaður þjónustu og þróunar
Ert þú framsækinn einstaklingur sem vilt þróa og efla þjónustu Akureyrarbæjar til framtíðar?
Akureyrarbær leitar að öflugum forstöðumanni þjónustu og þróunar. Um er að ræða lykilstarf fyrir metnaðarfullan stjórnanda sem vill leiða m.a. stafrænar umbreytingar, þróa þjónustuferla og styrkja gæði og skilvirkni í stjórnsýslu sveitarfélagsins. Starfið er 100% og ótímabundið. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða samkvæmt samkomulagi.
Þjónusta og þróun innan Þjónustu- og menningarsviðs sér um víðtæka innri og ytri þjónustu á vegum Akureyrarbæjar s.s. í þjónustuveri með móttöku þjónustubeiðna úr þjónustugátt, símsvörun og móttöku gesta. Skjala- og vefstjórnun, rekstur mötuneytis fyrir Ráðhús og Glerárgötu 26, húsumsjón ásamt þjónustu við bæjarráð, bæjarstjórn og bæjarstjóra. Þjónusta og þróun er leiðandi í stafrænum umbreytingum þvert á svið Akureyrarbæjar, innleiðingu ýmissa útbótaverkefna á sviði stjórnsýslu, gæðamála og umbóta í notendamiðaðri þjónustu.
Forstöðumaður þjónustu og þróunar ber ábyrgð á stefnumótun, rekstri og daglegri stjórnun þjónustu og þróunar. Starfið er bæði stjórnunarlegt og þróunarmiðað og krefst sterkrar leiðtogahæfni.
Forstöðumaður heyrir undir sviðsstjóra þjónustu- og menningarsviðs og fer með yfirstjórn starfsemi þjónustu og þróunar.
- Yfirumsjón með rekstri og starfsemi þjónustu og þróunar
- Mannauðsstjórnun og yfirstjórn verkefna
- Ábyrgð á fjárhagsáætlunum, rekstri kostnaðarstöðva og eftirliti með útgjöldum
- Leiða umbótaverkefni á sviði stjórnsýslu, gæðamála og notendamiðaðrar þjónustu þvert á svið Akureyrarbæjar
- Er leiðandi í innleiðingu rafrænnar stjórnsýslu hjá sveitarfélaginu og skapar vettvang til stafrænna umbreytinga
- Þróun og innleiðing nýjunga í þjónustu Akureyrarbæjar
- Umsjón með þjónustu við bæjarstjóra, bæjarráð og bæjarstjórn, s.s. undirbúningi funda, fundargerðum og upplýsingagjöf
- Ber ábyrgð á daglegum rekstri Ráðhúss og skrifstofubyggingar í Glerárgata 26
- Hefur umsjón með söfnun tölulegra upplýsinga sveitarfélagsins er snúa að starfseminni
- Hefur umsjón með, og ber ábyrgð á, ýmsum verkefnum tengdum kosningum til sveitarstjórnar, alþingis, forseta og öðrum tilfallandi kosningum
- Vinnur með sviðsstjóra og öðrum að gerð starfsáætlunar fyrir þjónustu og þróun
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi (BA/BS)
- Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi er kostur
- Geta til að leiða og efla starfsfólk til árangurs
- Reynsla af skipulagningu, framkvæmd og eftirfylgni verkefna
- Reynsla af teymisstjórnun er kostur
- Þekking og reynsla af stjórnsýslu sveitarfélaga æskileg
- Vilji til nýsköpunar og geta til innleiðingar nýrra hugmynda og vinnubragða
- Farsæl reynsla af breytingastjórnun og innleiðingu umbótaverkefna
- Þekking og/eða reynsla af stafrænum umbreytingum æskileg
- Góð færni í ræðu og riti á íslensku og ensku
- Góð almenn tölvukunnátta
- Þekking á fjárhagskerfum og OneSystem skjalakerfi kostur
- Framúrskarandi samskiptafærni og hæfni til að skapa góðan starfsanda
- Rík þjónustulund, frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og hugmyndaauðgi
- Gerð er krafa um vammleysi, gott orðspor og að framkoma og athafnir samrýmist starfinu, jafnt á vinnustað sem utan hans
Við leitum að einstaklingi sem sameinar sterka stjórnunarhæfni, þróunarhugsun og skilning á opinberri stjórnsýslu, með ríka áherslu á þjónustu, gæði og stafræna framtíðarsýn.
Enska
Íslenska

























