Náttúruverndarstofnun
Náttúruverndarstofnun

Náttúruperlur Suðurlands og suðvesturlands – stjórnandi

Náttúruverndarstofnun auglýsir til umsóknar starf umdæmisstjóra náttúruverndarsvæða á suður- og suðvesturlandi. Margar af þekktustu náttúruperlum landsins eru í umdæminu svo sem Friðland að Fjallabaki, Gullfoss, Geysir, Kerlingafjöll, Skógafoss og Dyrhólaey ásamt fjölmörgum friðlýstum svæðum á höfuðborgarsvæðinu og Reykjanesi.

Helsta hlutverk umdæmisstjóra og starfsfólks umdæmis er að viðhalda verndargildi svæðanna og sjá til þess að upplifun gesta sem sækja áfangastaðina heim sé sem best.

Umdæmisstjóri þarf að hafa stefnumiðaða sýn varðandi þróun svæðanna til framtíðar og ber ábyrgð á rekstri friðlýstra svæða ásamt því að sinna almennum náttúruverndarmálum sem tengjast landshlutanum. Umdæmisstjóri vinnur þétt með öðrum umdæmisstjórum stofnunarinnar.

Leitað er að kraftmiklum einstaklingi sem vill nýta þekkingu á stjórnun og áhuga á náttúruvernd til að taka þátt í þróun náttúruverndar, samstarfi og þjónustu við gesti á svæðinu. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf þar sem frumkvæði og sjálfstæði fá að njóta sín. Starfsstöð er á Hvolsvelli.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ábyrgð á rekstri umdæmis 

  • Fjárhagsáætlunargerð og eftirfylgni  

  • Leiða teymi sérfræðinga á svæðinu 

  • Ábyrgð á mannauðsmálum umdæmis 

  • Ábyrgð á uppbyggingu áfangastaða á starfssvæði 

  • Samvinna með sveitarfélögum á svæðinu 

  • Þróun og stefnumótun svæðisins  

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi 

  • Frammúrskarandi samskipta- og samstarfsfærni 

  • Leiðtogahæfileikar 

  • Reynsla af stjórnun og rekstri æskileg 

  • Geta til að  þróa hugmyndir og verklag 

  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi 

  • Áhugi og þekking á náttúruvernd og umhverfismálum 

  • Þekking á starfsemi friðlýstra svæða er kostur 

  • Þekking á stjórnsýslu er kostur 

  • Þekking og reynsla af landvörslu er kostur  

  • Gott vald á íslensku og ensku 

Auglýsing birt22. apríl 2026
Umsóknarfrestur7. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Austurvegur 4, 860 Hvolsvöllur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar