Akureyri
Akureyri
Akureyri

Leikskólinn Tröllaborgir: Matráður

Leikskólinn Tröllaborgir óskar eftir að ráða matráð til starfa. Um er að ræða 100% ótímabundið starf með vinnutímann frá kl. 7 til 15. Æskileg starfsbyrjun væri í júní eða eftir samkomulagi.

Lífsleikni í leikskóla eru áherslur Tröllaborga og byggir sú hugmyndafræði á kenningum ýmissa fræðimanna sem snúa að mannrækt og siðferðilegu gildismati í samfélagi manna og þeirri trú að efla og styrkja hið góða í hverjum einstaklingi bæði börnum og fullorðnum. Lögð er áhersla á að túlka lífsleiknina sem hugsjón sem þurfi að flæða yfir allt starf frekar en sem námsgrein innan skólans. Einnig er lögð áhersla á læsi og jóga.

Einkunnarorð skólans eru „Hugur- hjarta - hönd“.

Skólinn hefur tvær starfsstöðvar; að Tröllagili 29 og í Árholti Háhlíð 1.

Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn https://trollaborgir.is

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Hefur umsjón með daglegum rekstri eldhúss.
  • Er verkstjóri aðstoðarmatráða í eldhúsi leikskóla.
  • Annast matseld, bakstur, sérfæði nemenda og sér um framfylgd matseðla.
  • Sér um innkaup, birgðavörslu og frágang á vörum fyrir eldhús skólans, s.s. matvöru, borðbúnað og hreinlætisvörum fyrir skólann.
  • Fylgist með tækjum og búnaði og lætur vita ef þörf er að endurnýja eða lagfæra.
  • Annast matreiðslu og hefur umsjón með framreiðslu fæðis fyrir nemendur og starfsfólk.
  • Annast frágang í mötuneyti og dagleg þrif í eldhúsi samkvæmt þrifaáætlun, gólfþrif eru undanskilinn.
  • Sér um morgunmat, hádegisverð og síðdegishressingu fyrir nemendur.
  • Sér um þvotta, frágang og heldur þvottahúsi og þvottavélum snyrtilegum.
  • Sinnir öðrum þeim verkefnum sem yfirmaður felur honum og falla innan starfssviðs hans.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Matartækninám.
  • Þekking á gerð og framreiðslu matar.
  • Reynsla af starfi í mötuneyti.
  • Þekking á ráðleggingum Lýðheilsustöðvar varðandi skólamáltíðir er æskileg.
  • Almenn tölvuþekking er nauðsynleg.
  • Þarf að vera skipulagður, geta sýnt frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Stundvísi, reglusemi og færni í samskiptum.
  • Kunnátta í skyndihjálp.
  • Snyrtimennska.
  • Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti er skilyrði.
  • Góð enskukunnátta er æskileg. 
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Auglýsing birt21. apríl 2026
Umsóknarfrestur1. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Tröllagil 29, 603 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn tölvukunnáttaPathCreated with Sketch.FramreiðslaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Snyrtimennska
Starfsgreinar
Starfsmerkingar