Akureyri
Akureyri
Akureyri

Leikskólinn Hagasteinn: Deildarstjórar

Leikskólinn Hagasteinn á Akureyri óskar eftir að ráða deildastjóra í 100% stöður. Um er að ræða ótímabundin störf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf frá 1. ágúst 2026.

Í leikskólanum Hagasteini verður lögð áhersla á Jákvæðan aga, hæglæti, barnasáttmálann, umhverfismennt og vellíðan með það að markmiði að skapa gott náms - og starfsumhverfi.

Þar sem um nýjan leikskóla er að ræða mun starfsfólk taka þátt í að byggja upp starf skólans frá grunni og því er um einstakt tækifæri að ræða fyrir metnaðarfulla einstaklinga.

Sýn okkar er: faglegur skóli, starfsánægja og fagleg forysta með gleði, traust og virðingu að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ber ábyrgð á stjórnun, skipulagningu, framkvæmd og mati starfsins á deildinni.
  • Annast daglega verkstjórn á deildinni og ber ábyrgð á að miðla upplýsingum innan deildarinnar, milli deilda leikskólans og milli stjórnenda og deildarinnar.
  • Tekur þátt í gerð skólanámsskrár, ársáætlunar, mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum undir stjórn leikskólastjóra.
  • Ber ábyrgð á og stýrir deildarfundum og skipuleggur undirbúningstíma starfsfólks deildarinnar.
  • Hefur umsjón með móttöku, þjálfun og leiðsögn nýrra starfsmanna deildarinnar.
  • Ber ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá og ársáætlun leikskólans á deildinni.
  • Tryggir að sérhvert barn á deildinni fái kennslu, leiðsögn, umönnun eftir þörfum.
  • Ber ábyrgð á að meðferðaráætlunum sérfræðinga vegna einstakra barna sé framfylgt.
  • Sér um samskipti og samvinnu við foreldra í samráði við leikskólastjóra.
  • Situr foreldrafundi sem haldnir eru á vegum skólans.
  • Situr starfsmannafundi, deildarstjórafundi og aðra fundi er leikskólastjóri segir til um og varðar starfsemi leikskólans.
  • Sinnir að öðru leyti þeim verkefnum er varðar stjórnun leikskólans sem yfirmaður felur honum.
  • Vinnur eftir uppeldisstefnu skólans.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Umsækjendur þurfa að hafa lokið leikskólakennaranámi eða annarri háskólamenntun (B.Ed., BA eða BS) sem nýtist í starfi leikskólans.
  • Reynsla af stjórnun deilda er kostur.
  • Óskað er eftir sjálfstæðum, ábyrgum, sveigjanlegum og mjög jákvæðum einstaklingum.
  • Reglusemi og samviskusemi.
  • Afar mikilvægt er að viðkomandi eigi auðvelt með mannleg samskipti, geti lesið í umhverfi sitt, sýni frumkvæði í starfi og sé tilbúinn til að takast á við skemmtilegt starf með börnum.
  • Viðkomandi þarf að vera tilbúin til að leita leiða og nýta tækifærin sem gefast við mótun skólans með skólaþróun að leiðarljósi.
  • Góð tölvukunnátta er nauðsynleg.
  • Umsækjandi þarf að hafa gott vald á íslensku, bæði í töluðu og rituðu máli og geta átt samskipti á íslensku við nemendur, samstarfsfólk og foreldra.
  • Þekking á Jákvæðum aga er kostur.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Auglýsing birt17. apríl 2026
Umsóknarfrestur10. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Naustagata
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar