

Leikskólakennari óskast í frábæran skóla
Við óskum eftir að ráða áhugasaman og drífandi kennara til starfa í leikskólanum Vinagarði sem er sjálfstætt starfandi leikskóli rekinn af KFUM og KFUK á Íslandi. Við leitum að einstaklingi sem hefur ánægju af samskiptum við aðra, býr yfir hugmyndaauðgi, ásamt metnaði til að hlúa að skapandi og uppbyggilegu umhverfi fyrir börn í anda stefnu leikskólans.
Við vinnum mikið með náttúruna og útinám, vináttu og tengsl. Í skólanum er frábær hópur kennara og reyndra leiðbeinenda. Við leysum að hluta til af styttingu vinnuvikunnar og hjá okkur eru færri börn á deildum en í sambærilegum leikskólum.
Okkur vantar allra mest kennara sem hefur áhuga á starfi með yngstu börnum leikskólans.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vinna að menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara, taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Kennaramenntun, leyfisbréf til kennslu í leikskóla
- Önnur uppeldismenntun ef ekki fæst kennari til starfa
- Áhugi, reynsla og hæfni í starfi með börnum
- Lipur og árangursrík samskipti og samstarfshæfni
- Hugmyndaauðgi, sjálfstæði og sveigjanleiki í vinnubrögðum
- Reglusemi og heiðarleiki
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði
- Hreint sakavottorð
Fríðindi í starfi
- Leikskólinn er lokaður milli jóla og nýárs
- Máltíðir yfir daginn
Auglýsing birt13. apríl 2026
Umsóknarfrestur27. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Holtavegur 28, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiHugmyndaauðgiKennariSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSkipulagSveigjanleiki
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Deildarstjórar
Leikskólinn Jötunheimar

Verkefnastjóri í sumarféló fyrir fötluð börn í Ölfusi
Sveitarfélagið Ölfus

Deildarstjóri óskast á Kópastein
Kópasteinn

Ert þú kennari? þá er þetta starfið fyrir þig
Leikskólinn Sjáland

Umsjónarkennari á yngsta stigi í Álfhólsskóla 2026-2027
Álfhólsskóli

Hraunmeistari | Lava Master Part-Time
Lava Show

Laus staða íþróttakennara
Vesturbyggð

Kennari - Patreksskóli
Vesturbyggð

Umsjónarkennari - Patreksskóli
Vesturbyggð

List- og verkgreinakennari, með áherslu á sjónlistir
Vesturbyggð

List- og verkgreinakennari, með áherslu á textílmennt
Vesturbyggð

List- og verkgreinakennari, með áherslu á hönnnun og smíði
Vesturbyggð