Sveitarfélagið Ölfus
Sveitarfélagið Ölfus

Verkefnastjóri í sumarféló fyrir fötluð börn í Ölfusi

Langar þig að skapa ógleymanlegt sumar fyrir börn?

Sveitarfélagið Ölfus leitar að drífandi og hjartahlýjum leiðtoga sem vill taka þátt í að byggja upp einstakt sumarstarf fyrir fötluð börn.

Þetta er ekki bara starf – þetta er tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif.
Þú munt leiða starfsemi þar sem gleði, öryggi og þátttaka er í forgrunni og hvert barn fær að njóta sín á eigin forsendum.
Um er að ræða 100% starf og er æskilegt að starfsmaður sé að minnsta kosti 20 ára.

Helstu verkefni og ábyrgð

-         Skipuleggja og þróa dagskrá sumarsins

-         Halda utan um vinnuskólatengd verkefni, námskeið og afþreyingu

-         Vera í virku samstarfi við foreldra og fagaðila

-         Vinna í góðri samvinnu við forstöðumann sumarfrístundar og aðra starfsmenn

-         Tryggja að starfsemin mæti þörfum hvers barns

Menntunar- og hæfniskröfur

·         Menntun sem nýtist í starfi, t.d. þroskaþjálfi, iðjuþjálfi, íþrótta- eða tómstundafræði eða sambærileg menntun.

·         Reynsla af starfi með börnum og/eða fötluðum einstaklingum

·         Góð skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum

·         Góð samskiptahæfni í tali og riti

·         Hæfni til að leiða hóp og taka ákvarðanir

·         Jákvæðni og góð þjónustulund

·         Góð tölvukunnátta

Auglýsing birt14. apríl 2026
Umsóknarfrestur20. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Egilsbraut 35, 815 Þorlákshöfn
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar