Þjórsárskóli
Þjórsárskóli

Störf kennara við Þjórsárskóla fyrir skólaárið 2026-2027

Lausar eru til umsóknar eftirfarandi stöður við kennslu í Þjórsárskóla frá og með hausti 2026.

Þjórsárskóli er heildstæður skóli með um 65-70 nemendur í 1.-10. bekk. Mikil áhersla er á útinám og að þróa skólastarf sem að kemur til móts við nemendur með einstaklingsbundnum hætti. Skólinn er staðsettur í Árnesi um 30 mínútur frá Selfossi.

Við skólann er verið að byggja fullbúið íþróttahús sem tekið verður í notkun fyrir skólann haustið 2026. Húsið býður upp á fjölbreytta og metnaðarfulla kennslu og spennandi aðstöðu fyrir íþróttakennara.

Skólinn er vel búinn hvað varðar aðstöðu í nýju verknámshúsi.

Stöður:

  • Umsjónarkennari á yngsta stigi

  • Umsjónarkennari á miðstigi

  • Umsjónarkennari á unglingastigi

  • Hönnun og smíði 35%

  • Útikennsla 20%

  • Heimilisfræði 35%

  • Tónmenntakennsla 20%

  • Íþrótta og sundkennsla 80-100%

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari / í Med námi. 

  • Áhugi á að starfa með börnum. 

  • Hæfni í mannlegum samskiptum. 

  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð. 

  • Áhugi á skólaþróun.  

  • Faglegur metnaður. 

  • Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi. 

  • Reynsla af teymisvinnu er kostur. 

  • Mjög góð íslenskukunnátta. 

Auglýsing birt13. apríl 2026
Umsóknarfrestur24. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Skólabraut 8, 801 Selfoss
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar