Snælandsskóli
Snælandsskóli
Snælandsskóli

Forstöðumaður frístundar í Snælandsskóla

Snælandsskóli leitar að jákvæðum og áhugasömum einstaklingi í starf forstöðumanns frístundar.

Snælandsskóli er heildstæður um 470 nemenda grunnskóli staðsettur í Fossvogsdal. Skólinn byggir á langri hefð fyrir framsæknu og árangursríku skólastarfi þar sem áhersla hefur verið lögð á þátttöku í margs konar þróunar- og nýbreytniverkefnum. Skólinn er Grænfána skóli í samvinnu við Landvernd, styðst við Olweusaráætlunina gegn einelti og þá er skólinn líka Réttindaskóli Unicef.

Einkunnarorð skólans eru: Viska – virðing – víðsýni – vinsemd.

Starfssvið og helstu verkefni

  • Umsjón með skipulagi og rekstri frístundar.
  • Vinna að starfsáætlun og mótun félagslegs starfs og í samráði við skólastjórnendur.
  • Samvinna og samstarf við kennara, foreldra og stjórnendur.

Menntunar og hæfniskröfur

  • Háskólanám (BEd, BA) á sviði tómstunda-, uppeldis- og/eða félagsfræða
  • Reynsla skipulögðu starfi með börnum
  • Reynsla af stjórnun er æskileg
  • Hæfni til að skipuleggja faglegt starf og veita því forystu
  • Þolinmæði og framúrskarandi hæfni í samskiptum.
  • Viðkomandi þarf að vera skipulagður, sýna sjálfstæði og frumkvæði í starfi.
  • Viðkomandi þarf að vera lausnarmiðaður í hugsun og geta sýnt sveigjanleika í skipulagi
  • Stundvísi og áreiðanleiki er skilyrði.
  • Áhugi á að vinna með fjölbreytta nemendahópa.
  • Umsækjandi þarf að vera tilbúinn að vinna eftir stefnu skólans.

Ráðningartími og starfshlutfall

Ráðið er í stöðuna frá og með 1. ágúst 2026 til eins árs vegna fæðingarorlofs.

Um er að ræða 100% starfshlutfall.

Hægt er að skoða möguleika á að ráða frá og með 1. maí 2026 og þá til 31. júlí 2027.

Aðrar upplýsingar

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Bent er á að samkvæmt lögum verða umsækjendur að skila inn sakavottorði.

Tekið verður mið af jafnréttisstefnu Kópavogsbæjar við ráðningu í starfið.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Anna Karen Ágústsdóttir forstöðumaður í gegnum netfangið [email protected].

Tekið er á móti starfsumsóknum í gegnum alfred.is.

Fríðindi í starfi

Starfsfólk Kópavogs fær frítt í sundlaugar Kópavogs.

Auglýsing birt14. apríl 2026
Umsóknarfrestur27. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Fagrilundur , 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar