

Deildarstjóri - Varmahlíðarskóli
Varmahlíðarskóli óskar eftir að ráða grunnskólakennara í stöðu deildarstjóra frá 1. ágúst 2026. Í starfinu felst m.a. almenn störf deildarstjóra sem fer með daglega verkstjórn starfsfólks, skipulag vegna forfalla, yfirumsjón sérkennslu, nemendamál auk þess að starfa sem tengiliður farsældar. Deildarstjóri er staðgengill skólastjóra. Aðrir verkþættir stjórnunar verða í samstarfi og samráði við skólastjóra og geta tekið breytingum og þróast eftir atvikum. Um er að ræða 100% starf.
Í Varmahlíðarskóla eru um 110 nemendur í 1. - 10. bekk. Flestir nemendur skólans koma úr Varmahlíð og dreifbýli í framanverðum Skagafirði. Einkunnarorð skólans eru: Virðing, Metnaður og Vellíðan. Varmahlíðarskóli leggur áherslu á faglegt og fjölbreytt starf. Í skólanum er samkennsla og lögð er áhersla á einstaklingsmiðað nám og samvinnu milli nemenda. Skólinn býr yfir miklum mannauði sem stendur saman og leysir í sameiningu þau verkefni sem koma upp. Varmahlíðarskóli starfar sem heilsueflandi grunnskóli og leggur áherslu á velferð, hreyfingu og heilbrigða lífshætti sem m.a. hefur sést í góðum árangri í Skólahreysti síðustu ár. Íþróttahús og sundlaug eru staðsett við hlið skólans. Árlega eru settar upp leiksýningar í Miðgarði sem hafa dregið að marga áhorfendur og vakið gleði í samfélaginu. Leikskólabygging er samtengd grunnskólanum og mikið og gott samstarf er á milli leik- og grunnskóla. Tónlistarskólinn er með aðstöðu í skólanum og er rík tónlistarhefð í skólanum og samfélaginu. Fallegt umhverfi skólans býður upp á mikla útivist og möguleika til útikennslu.
Leitað er að einstaklingi með mikinn faglegan metnað sem leggur áherslu á vellíðan og árangur nemenda í samstarfi við samstarfsfólk, stjórnendur og fagaðila.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Grunnskólakennaranám og leyfi til kennslu.
- Viðbótarmenntun á sviði stjórnunar er æskileg.
- Reynsla af stjórnun og kennslu í grunnskóla er æskileg.
- Faglegur metnaður og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
- Frumkvæði og samstarfsvilji.
- Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum.
- Góð tækniþekking sem nýtist í starfi.
- Góð þekking á kennslu- og uppeldisfræði.
- Góðir skipulagshæfileikar, sveigjanleiki og hæfni í samskiptum.
- Reglusemi, stundvísi og samviskusemi.
- Mjög góð íslenskukunnátta í töluðu og rituðu máli.
- Hreint sakavottorð samkvæmt lögum um grunnskóla.
Grunnskólakennarar starfa samkvæmt lögum og reglugerðum um grunnskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá, skólanámskrá og stefnu sveitarfélagsins.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Skólastjórafélag Íslands.
Nánari upplýsingar veita:
Trostan Agnarsson, skólastjóri, [email protected] eða 455 6023.
Bryndís Lilja Hallsdóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs, [email protected] eða 455 6088.
Einungis er tekið við rafrænum umsóknum á heimasíðu sveitarfélagsins (laus störf). Prófskírteini, leyfisbréf og greinargóð ferilskrá skal fylgja umsókn.
Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað að lokinni ráðningu.
Íslenska










