Sveitarfélagið Skagafjörður
Sveitarfélagið Skagafjörður
Sveitarfélagið Skagafjörður

Skólastjóri Varmahlíðarskóla

Staða skólastjóra Varmahlíðarskóla er laus til umsóknar. Leitað er að einstaklingi með leiðtogahæfni og víðtæka þekkingu á skólastarfi. Skólastjóri veitir faglega forystu og leiðir skipulagningu á skapandi skólastarfi sem er í stöðugri framþróun í samvinnu við nemendur, kennara, foreldra og skólayfirvöld. Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. ágúst 2026.

Í Varmahlíðarskóla eru um 110 nemendur í 1. - 10. bekk. Flestir nemendur skólans koma úr Varmahlíð og dreifbýli í framanverðum Skagafirði. Einkunnarorð skólans eru: Virðing, Metnaður og Vellíðan. Varmahlíðarskóli leggur áherslu á faglegt og fjölbreytt starf. Í skólanum er samkennsla og lögð er áhersla á einstaklingsmiðað nám og samvinnu milli nemenda. Skólinn býr yfir miklum mannauði sem stendur saman og leysir í sameiningu þau verkefni sem upp koma. Varmahlíðarskóli starfar sem heilsueflandi grunnskóli og leggur áherslu á velferð, hreyfingu og heilbrigða lífshætti sem m.a. hefur sést í góðum árangri í Skólahreysti síðustu ár. Íþróttahús og sundlaug eru staðsett við hlið skólans. Árlega eru settar upp leiksýningar í Miðgarði sem hafa dregið að marga áhorfendur og vakið gleði í samfélaginu. Leikskólabygging er samtengd grunnskólanum og mikið og gott samstarf er á milli leik- og grunnskóla. Tónlistarskólinn er með aðstöðu í skólanum og er rík tónlistarhefð í skólanum og samfélaginu. Fallegt umhverfi skólans býður upp á mikla útivist og möguleika til útikennslu.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Stýrir og ber faglega ábyrgð á daglegri starfsemi skólans.
  • Ábyrgð á daglegum rekstri og fjármálum skólans.
  • Forysta í mótun og eftirfylgni með stefnu skólans í samræmi við menntastefnu sveitarfélagsins, aðalnámskrá grunnskóla og lög um grunnskóla.
  • Mannauðsmál, s.s. ráðningar, starfsþróun og vinnutilhögun.
  • Stuðlar að góðum skólabrag og samstarfsvettvangi skóla og samfélags.
  • Dagleg umsjón og umráð skólamannvirkja.
  • Leiðir og hvetur starfsfólk áfram með það að markmiði að tryggja sem best samskipti og gagnkvæmt traust.
  • Samstarf við skólasamfélagið í Skagafirði.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leyfisbréf sem kennari, auk kennslu- og stjórnunarreynslu í grunnskóla.
  • Viðbótarmenntun í stjórnun eða reynsla sem veitir sérhæfða hæfni, sbr. 2. mgr. 5. gr. laga nr. 95/2019.
  • Leiðtogahæfni og reynsla af faglegri forystu á sviði skólamála í grunnskóla.
  • Þekking og reynsla af stjórnsýslu, fjármálastjórn og mannauðsmálum.
  • Góð þekking á notkun upplýsingatækni í kennslu.
  • Lipurð í samstarfi og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Metnaður fyrir öflugu skólastarfi.
  • Skýr framtíðarsýn.
  • Frumkvæði, sjálfstæði og góðir skipulagshæfileikar.
  • Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.

Nánari upplýsingar veitir Bryndís Lilja Hallsdóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs, [email protected] eða 455 6088.

Einungis er tekið við rafrænum umsóknum á heimasíðu sveitarfélagsins (laus störf). Með umsókn skal fylgja kynningarbréf þar sem í stuttu og kjarnyrtu máli er gert grein fyrir hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi, ferilskrá og afrit af prófskírteinum.

Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Auglýsing birt9. apríl 2026
Umsóknarfrestur29. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Birkimel 2
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FjárhagsáætlanagerðPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.MannauðsstjórnunPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Opinber stjórnsýslaPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Starfsmannahald
Starfsgreinar
Starfsmerkingar