Borgarbyggð
Borgarbyggð
Borgarbyggð

Skólastjóri við Grunnskólann í Borgarnesi

Borgarbyggð auglýsir starf skólastjóra í Grunnskólanum í Borgarnesi. Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir leiðtogahæfileikum til að stýra framsæknum skóla í ört stækkandi sveitarfélagi. Mikilvægt er að viðkomandi hafi víðtæka þekkingu á skólastarfi, framsækna skólasýn og er tilbúinn að leiða skólann inn í framtíðina. Í Borgarbyggð eru tveir grunnskólar, fjórir leikskólar og tónlistarskóli.

Grunnskólinn í Borgarnesi er heildstæður grunnskóli með um 330 nemendur og 65 starfsmenn. Góður starfsandi, samheldni og jákvæð samskipti einkenna starfsmannahópinn og er vellíðan nemenda og starfsfólks ávallt höfð að leiðarljósi. Skólinn vinnur eftir stefnu Uppeldis til ábyrgðar þar sem áhersla er lögð á velferð nemenda. Lögð er áhersla á skapandi skólastarf og samvinnu kennara og nemenda. Grunnskólinn í Borgarnesi er teymiskennsluskóli og vorið 2026 lýkur innleiðingarferli skólans á leiðsagnarnámi.

Gildi skólans er sjálfstæði, ábyrgð, virðing og samhugur.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Stýrir og ber ábyrgð á rekstri og daglegri starfsemi skólans.
  • Veitir skólanum faglega forystu.
  • Mótar framtíðarstefnu skólans innan ramma laga og reglugerða, í samræmi við aðalnámskrá grunnskóla og menntastefnu Borgarbyggðar.
  • Stýrir og ber ábyrgð á rekstri og daglegri starfsemi skólans.
  • Ber ábyrgð á starfsmannamálum, s.s. ráðningum, vinnutilhögun og starfsþróun.
  • Ber ábyrgð á samstarfi við aðila skólasamfélagsins.
  • Stuðlar að velferð og vellíðan nemenda og starfsfólk.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf kennara og farsæl kennslureynsla í grunnskóla
  • Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar eða uppeldis- og menntunarfræða kostur
  • Reynsla af stjórnun og faglegri forystu í skólastarfi
  • Reynsla af rekstri og gerð fjárhagsáætlana er æskileg
  • Leiðtogafærni, metnaður og styrkur til ákvarðana
  • Þjónustulund og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
  • Skipulagshæfni og góð yfirsýn
  • Góð hæfni til að tjá sig í ræðu og riti, á íslensku og ensku
Auglýsing birt30. mars 2026
Umsóknarfrestur13. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Digranesgata 2, 310 Borgarnes
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FjárhagsáætlanagerðPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.MannauðsstjórnunPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Skipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar