
Aðstoðarskólameistari – Fjölbrautaskóli Snæfellinga
Fjölbrautaskóli Snæfellinga auglýsir eftir aðstoðarskólameistara í 50% stöðu frá og með 1. ágúst 2026.
Aðstoðarskólameistari er staðgengill skólameistara og nánasti samstarfsaðili hans í daglegri stjórnun, stefnumótun og þróun skólastarfs.
Leitað er að framsýnum leiðtoga sem hefur brennandi áhuga á menntamálum, einlægan metnað fyrir velgengni nemenda og framgangi í námi auk vilja til að vinna að framsæknu skólastarfi með nemendum, starfsfólki, stjórn og nærsamfélagi. Aðstoðarskólameistari er leiðandi þegar kemur að nýtingu á tækni í skólastarfi, nýsköpun og þróun í kennslu og skipulagi náms.
-
Mótun skólastarfs á grundvelli aðalnámskrár framhaldsskóla
-
Þátttaka í stefnumótun og áframhaldandi þróun og nýsköpun í skólastarfi
-
Skipulag námsframboðs
-
Skipulag kennslu og stundaskrár
-
Veitir kennslufræðilega forystu
-
Ábyrgð á námsmati og mati náms úr öðrum skólum
-
Ábyrgð á gæðastarfi og sjálfsmati
-
Aðkoma að upplýsingamiðlun á vefmiðlum
-
Samskipti við nemendur, starfsfólk og stjórn
-
Umsjón með útskriftarnemum
-
Háskólamenntun sem nýtist í starfi og leyfisbréf kennara, viðbótarmenntun í stjórnun æskileg.
-
Reynsla af kennslu í framhaldsskóla æskileg
-
Reynsla og þekking á stefnumótun og mótun framtíðarsýnar menntastofnana æskileg
-
Framúrskarandi samskiptahæfileikar
-
Leiðtogahæfileikar, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
-
Gott vald á íslensku og ensku í bæði töluðu og rituðu máli
-
Áhugi á nýtingu tækni í skólastarfi
-
Hreint sakavottorð og gott orðspor
Enska
Íslenska










