Menntaskólinn að Laugarvatni
Menntaskólinn að Laugarvatni

Raunvísindakennari skólaárið 2026-2027

Menntaskólinn að Laugarvatni óskar eftir að ráða kennara í efnafræði, eðlisfræði og stærðfræði á þriðja þrepi til eins árs. Menntaskólinn að Laugarvatni er framhaldsskóli sem byggir á bekkjakerfi. Boðið er upp á nám til stúdentsprófs á bóknámsbrautum; náttúruvísindabraut og félags- og hugvísindabraut. Áhugasömum um starfið er einnig bent á að kynna sér vel þær stefnur og áætlanir sem skólinn hefur sett sér varðandi jafnréttismál, EKKO mál og fleira en starfsfólk skólans skal vinna í takti við þær áherslur.

Helstu verkefni og ábyrgð

Kennsla í áföngum í efnafræði, eðlisfræði og stærðfræði skv. áfangalýsingum fagstjóra. Kennarinn ber ábyrgð á kennslu, undirbúningi og námsmati í viðkomandi faggrein og tekur þátt í faglegu samstarfi kennara og starfsfólks við skólann. Athygli er vakin á því að skólinn hefur yfir að ráða nýuppgerða efnafræðistofu sem er öll hin glæsilegasta. 

Einnig er í boði að taka kennsluna að hluta, nánari upplýsingar hjá skólameistara. 

Menntunar- og hæfniskröfur

Umsækjendur skulu hafa réttindi til að nota starfsheitið kennari og vera með sérhæfingu í viðkomandi faggrein til að kenna á 2.-4. hæfnisþrepi. 

Umsækjandi skal:

  • Uppfylla kröfur um menntun og hæfni skv. lögum nr. 95/2019
  • Hafa metnað, frumkvæði, öguð vinnubrögð og jákvætt hugarfar að leiðarljósi í starfi
  • Búa yfir samskiptafærni, þjónustulund og hæfni til að starfa með öðrum sem og að vinna sjálfstætt
  • Góð tölvukunnátta og þekking á upplýsingatækni er nauðsynleg, til að mynda þekking og kunnátta í kennslukerfum og Office365
Auglýsing birt25. mars 2026
Umsóknarfrestur7. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Laugarvatn, Menntaskó 167844, 840 Laugarvatni
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.KennariPathCreated with Sketch.Kennsla
Starfsgreinar
Starfsmerkingar