
Íþróttakennari
Þjórsárskóli óskar eftir kennara í íþróttum og sundi skólaárið 2026-2027. Þjórsárskóli er heildstæður skóli með um 65-70 nemendur í 1.-10. Bekk.
Við skólann er verið að byggja fullbúið íþróttahús sem tekið verður í notkun sumarið 2026. Húsið býður upp á fjölbreytt tækifæri til metnaðarfullrar kennslu og spennandi aðstöðu fyrir íþróttakennara sem fær að byggja upp sína kennslu í glænýju rými.
Sund er kennt í tveimur laugum. Neslaug í Árnesi þar sem að yngri nemendum í 1.-6. bekk er kennt og í Skeiðalaug Brautarholti þar sem nemendum í 7.-10. bekk er kennt.
Gert er ráð fyrir um 40% starfi við íþróttakennslu og um 40% starfi við sundkennslu. Auk þess er möguleiki á öðrum verkefnum eftir áhuga umsækjenda. Einnig er möguleiki á að koma inn í frístundastarf í samvinnu við ungmennafélagið og sveitarfélagið.
Stefnt er að því að auka við íþrótta og hreyfistundir á skólaárinu og möguleiki fyrir viðkomandi kennara að hafa mikil áhrif á það.
Við skólann er mikil útikennsla og áhersla á ferðir og ferðlög. Mikilvægt er að umsækjendur séu tilbúnir til að taka þátt í slíku starfi.
Íþrótta- og sundkennsla
-
Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari / í Med námi.
-
Reynsla af íþróttakennslu er æskileg
-
Áhugi á að starfa með börnum.
-
Hæfni í mannlegum samskiptum.
-
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
-
Faglegur metnaður.
-
Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
-
Reynsla af teymisvinnu er kostur.
-
Mjög góð íslenskukunnátta.
Íslenska










