
Klettaskóli
Klettaskóli - Kennari eða þroskaþjálfi í þátttökubekk í Árbæjarskóla
Við leitum að kennara eða þroskaþjálfa fyrir þátttökubekk Klettaskóla sem staðsettur er í Árbæjarskóla. Viðkomandi þarf að byrja sem fyrst.
Klettaskóli er sérskóli fyrir nemendur með þroskahömlun og viðbótarfatlanir. Starfsmenn vinna í teymum og þurfa að hafa góða samstarfs- og samskiptahæfni, vera sveigjanlegir og tilbúnir að takast á við krefjandi en gefandi verkefni. Einkunnarorð skólans eru "Menntun fyrir lífið". Nám og kennsla nemenda er einstaklingsmiðuð þar sem byggt er á forsendum og styrkleikum hvers og eins nemanda.
Í þátttökubekknum eru 7 nemendur sem fá sérhæft námsúrræði undir stjórn Klettaskóla. Bekkurinn er með aðsetur í almennum grunnskóla. Í bekknum starfa nú þegar einn kennari og þrír stuðningsfulltrúar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Starfa í þverfaglegu teymi sem sér um skipulag og framkvæmd kennslu í bekknum
- Vinna einstaklingsnámskrár og námsmat
- Samstarf við foreldra og aðra fagaðila
- Vinna samkvæmt stefnu skólans og taka þátt í skólaþróunarvinnu
Menntunar- og hæfniskröfur
- Starfsleyfi til að starfa sem grunnskólakennari/þroskaþjálfi, starfsleyfi fylgi umsókn
- Sveigjanleiki og framúrskarandi hæfni í samskiptum
- Hæfni til að vinna í teymi
- Áhugi á að starfa með börnum
- Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi
- Lausnarmiðuð hugsun
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Stundvísi
- Góð íslenskukunnátta
Auglýsing birt7. apríl 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Starfstegund
Hæfni
KennariKennsla
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Umsjónarkennari Seyðisfjarðarskóla
Seyðisfjarðarskóli

Kennarar í Sandgerðisskóla skólaárið 2026-2027
Suðurnesjabær

Leikskólinn Hagasteinn: Sérkennslustjóri
Akureyri

Kennarar í Gerðaskóla skólaárið 2026-2027
Suðurnesjabær

Þroskaþjálfi - Gerðaskóli
Suðurnesjabær

Kennara vantar við Eskifjarðarskóla
Eskifjarðaskóli

Lindaskóli óskar eftir dönskukennara skólaárið 2026-2027
Lindaskóli

Smíðakennari í Kópavogsskóla
Kópavogsskóli

Urriðaholtsskóli - sérkennari á mið- og unglingastigi
Garðabær

Urriðaholtsskóli - umsjónakennarar á yngsta- og miðstig
Garðabær

Kennarastöður við Nesskóla
Nesskóli

Grunnskólakennari og kennarar í list- og verkgreinum
Bláskógaskóli Laugarvatni