
Leikskólinn Strandheimar
Leikskólinn Strandheimar - Brimver og Æskukot
Leikskólinn Strandheimar er starfræktur á tveimur starfsstöðum, Brimveri á Eyrarbakka og Æskukoti á Stokkseyri. Leikskólinn er fjögurra deilda og eru eldri og yngri deild á sitthvorri starfsstöðinni.
Leikskólinn starfar eftir Aðalnámskrá leikskóla og lögum um leikskóla, auk þess að vera Heilsueflandi leikskóli og Skóli á grænni grein.
Leiðarljós Strandheima eru Vellíðan - Sköpun - Virðing og eru þau leiðarvísir að þeim markmiðum sem við viljum að séu gegnum gangandi í leikskólastarfinu og samskiptum innan hans. Það er mikilvægt að stórum sem smáum líði vel, að virðing sé borin fyrir náunganum og að sköpunarkraftur einstaklingssins fái notið sín.
Það er ósk okkar að börnin:
Kynnist leikgleði
Öðlist færni í samskiptum
Læri að meta hreyfingu og þá ánægju sem hreyfing veitir
Fái frelsi til sköpunar í leik og starfi
Hlutverk kennarans er að vera góð fyrirmynd, grípa tækifærið og vera minnugur þess að leikurinn er námsleið leikskóla.

Leikskólinn Strandheimar auglýsir eftir leikskólakennurum
Viltu starfa í umhverfi þar sem vellíðan, sköpun og virðing eru ekki bara orð, heldur lifandi hluti af hverjum degi?
Leikskólinn Strandheimar leitar að leikskólakennurum til starfa frá hausti 2026 (eða eftir nánara samkomulagi).
Strandheimar starfa á tveimur starfsstöðvum, Brimveri á Eyrarbakka og Æskukoti á Stokkseyri. Við erum lítill og hlýr leikskóli þar sem lögð er áhersla á náin tengsl, faglegt starf og samvinnu.
Í Strandheimum vinnum við út frá:
- Heilsueflandi leikskóla
- Jákvæðum aga
- Hæglæti í starfi og samskiptum
Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1100 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að taka þátt í skipulagningu og framkvæmd uppeldis- og menntastarfs
- Að styðja við vellíðan, þroska og nám barna
- Að vinna í nánu samstarfi við samstarfsfólk og foreldra
- Að taka þátt í faglegri þróun og ígrundun
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf sem leikskólakennari (eða önnur sambærileg menntun)
- Reynsla af starfi með börnum er kostur
- Góð íslenskukunnátta
- Færni í samskiptum og jákvætt viðhorf
Við leitum að einstaklingum sem:
- hafa áhuga á að vinna með börnum á þeirra forsendum
- vilja taka þátt í þróun faglegs starfs
- hafa jákvætt viðhorf, frumkvæði og vilja til samstarfs
- leggja áherslu á hlý og virðingarfull samskipti
Auglýsing birt7. apríl 2026
Umsóknarfrestur20. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Blómsturvellir 1
Túngata 39
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiJákvæðniMannleg samskipti
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Íþróttakennari
Þjórsárskóli

Lágafellsskóli - umsjónarkennari á yngsta og miðstigi
Lágafellsskóli

Leikskólinn Strandheimar auglýsir eftir deildarstjórum
Leikskólinn Strandheimar

Umsjónarkennari á miðstigi í Álfhólsskóla 2026-2027
Álfhólsskóli

Íþróttakennari - Áslandsskóli
Hafnarfjarðarbær

Umsjónarkennari - Engidalsskóli - tímabundin ráðning
Hafnarfjarðarbær

Ert þú kennari? þá er þetta starfið fyrir þig
Leikskólinn Sjáland

Aðstoðarleikskólastjóri
Leikskólinn Bláskógar

Klettaskóli - Kennari eða þroskaþjálfi í þátttökubekk í Árbæjarskóla
Klettaskóli

Sérkennari/Þroskaþjálfi í sérdeild einhverfa í Álfhólsskóla 2026-2027
Álfhólsskóli

List- og verkgreinakennari - Kirkjubæjarskóli
Skaftárhreppur

Skólastjóri Grunnskóla Þorlákshafnar
Grunnskólinn í Þorlákshöfn