
Leikskólinn Reykjakot
Leikskólinn Reykjakot er staðsettur í afar fallegu umhverfi í Mosfellsbæ. Lögð er áhersla á leik barna, málrækt,sköpun og náttúru/umhverfi. Reykjakot er 5 deilda og þar eru 85 börn. Sjá nánar á heimasíðu skólans: https://mos.is/reykjakot

Leikskólakennari óskast í leikskólann Reykjakot
Leikskólinn Reykjakot óskar eftir að ráða leikskólakennara til starfa haustið 2026. Leikskólinn er staðsettur í fallegu umhverfi og nýtir sér svæði í kringum skólann mikið í skólastarfinu.
Í nálægð við náttúruna
- Staðsetning skólans mótar starf okkar: skógar, Varmá og fellin í nágrenni.
- Við nýtum útiveru og græn svæði til að efla heilsu og vellíðan.
- Náttúran er vettvangur verkefna, upplifana og listsköpunar.
- Börn læra að bera virðingu fyrir náttúrunni og finna innblástur í henni
Leikurinn – meginnámsleið barna
- Sjálfsprottinn leikur barna er í hávegum hafður.
- Leikurinn er námsleið ungra barna þar sem bæði gaman og alvara mætast.
- Börn semja reglur, ákveða upphaf, framvindu og lok leiksins.
- Leikurinn stuðlar að:
- félagslegum tengslum og samvinnu,
- skapandi hugsun og lausnaleit,
- fjölbreyttri notkun tungumáls,
- hreyfingu, samskiptum og tilfinningatengslum.
Mosfellsbær er heilsueflandi samfélag. Meginmarkmiðið er að skapa umhverfi og aðstæður sem stuðla að heilsusamlegum lifnaðarháttum, heilsu og vellíðan allra. Í því felst að skapa skólaumhverfi sem stuðlar að andlegri, líkamlegri og félagslegri heilsu og vellíðan barna og starfsfólks. Hreyfingin sem felst í að vera í náttúrunni sem og listsköpunin sjálf hefur jákvæð áhrif á líkamlega og ekki síður andlega líðan barna og starfsfólks.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Nám og leikur
- Umhyggja og velferð
- Teymisvinna
- Samvinna
- Útivist
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leikskólakennaramenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
- Reynsla af skólastarfi eða öðru starfi með börnum æskileg.
- Góð færni í samvinnu og samskiptum.
- Frumkvæði, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð.
- Áhugi á starfi með börnum og metnaður til að þróa öflugt skólastarf.
- Góð íslenskukunnátta
Fríðindi í starfi
- Samgöngustyrkur
- Líkamsræktarstyrkur
- Sundkort
- 36 stunda vinnuviku er náð með 38 stunda vinnuframlagi vikulega. Starfsfólk safnar því tveimur stundum vikulega sem nýttir er sem frí á skráningardögum leikskóla Mosfellsbæjar sem eru 10 á ári.
Auglýsing birt16. apríl 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Krókabyggð 2, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiHreint sakavottorðKennslaMannleg samskiptiSjálfstæð vinnubrögðSveigjanleikiTeymisvinna
Hentugt fyrir
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Leikskóli tækifæranna leitar að þér!
Vesturbyggð

Deildarstjóri
Leikskólinn Furuskógur

Sérkennsla í Blásölum
Leikskólinn Blásalir

Leikskólakennari/leiðbeinandi óskast til starfa
Leikskólinn Blásalir

Deildarstjóri stoðþjónustu - Víðistaðaskóli
Hafnarfjarðarbær

Kennari í stoðþjónustu Hólabrekkuskóla
Hólabrekkuskóli

ÍSAT kennari Hólabrekkuskóla
Hólabrekkuskóli

Deildarstjóri - HOLT
Leikskólinn Holt

Leikskólakennari óskast
Leikskólinn Tjarnarskógur

Ert þú kennari? þá er þetta starfið fyrir þig
Leikskólinn Sjáland

Kennari óskast á unglingastig
Helgafellsskóli

Kennari í Andabæ
Borgarbyggð