Leikskólinn Lyngholt
Leikskólinn Lyngholt
Leikskólinn Lyngholt

Aðstoðarmatráður við leikskólann Lyngholt, Reyðarfirði

Starf aðstoðarmatráðar við leikskólann Lyngholt, Reyðarfirði er laus til umsóknar.
Í leikskólanum Lyngholti eru tæplega 90 nemendur. Skólastarfið er byggt á Uppeldi til ábyrgðar og ART. Kjörorð skólans eru "Allir geta eitthvað, engin getur allt".
Skólinn er einn af fimm leikskólum í Fjarðabyggð sem eru hluti af öflugu skólasamfélagi. Nánari upplýsingar á heimasíðu skólans, lyngholt.leikskolinn.is

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Aðstoðar matráð við matseld, bakstur og önnur störf í eldhúsi.
  • Samstarf við annað starfsfólk skólans og nemendur.
  • Umsjón með þvottahúsi leikskólans og kaffistofu starfsmanna.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun tengd matreiðslu og næringu s.s. matartækni æskileg.
  • Þekking á næringu og matreiðslu nauðsynleg.
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
  • Jákvæðni og góð hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
Auglýsing birt12. mars 2026
Umsóknarfrestur9. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Heiðarvegur 5, 730 Reyðarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar