

Leikskólinn Tröllaborgir: Aðstoðarmatráður
Leikskólinn Tröllaborgir óskar eftir að ráða aðstoðarmatráð til starfa. Um er að ræða 87,5% ótímabundið starf með vinnutímann frá kl. 8:30 til 15:30. Æskileg starfsbyrjun væri um miðjan júní eða eftir samkomulagi.
Lífsleikni í leikskóla eru áherslur Tröllaborga og byggir sú hugmyndafræði á kenningum ýmissa fræðimanna sem snúa að mannrækt og siðferðilegu gildismati í samfélagi manna og þeirri trú að efla og styrkja hið góða í hverjum einstaklingi bæði börnum og fullorðnum. Lögð er áhersla á að túlka lífsleiknina sem hugsjón sem þurfi að flæða yfir allt starf frekar en sem námsgrein innan skólans. Einnig er lögð áhersla á læsi og jóga.
Einkunnarorð skólans eru „Hugur- hjarta - hönd“.
Skólinn hefur tvær starfsstöðvar; að Tröllagili 29 og í Árholti Háhlíð 1.
Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn https://trollaborgir.is
- Aðstoðar matráð við gerð og framreiðslu matar fyrir nemendur og starfsfólk skv. skilgreindu dagsskipulagi.
- Annast frágang og dagleg þrif í eldhúsi samkvæmt þrifaáætlun.
- Sér um uppvask.
- Sér um þvotta innan leikskólans.
- Gengur frá borðbúnaði eftir máltíðir.
- Aðstoðar í þeim verkefnum sem til falla í eldhúsi, s.s. að færa upp matinn, sjá um meðlæti, setja á vagna, tekur fullan þátt í matseld eftir þörfum o.þ.h.
- Sinnir öðrum þeim verkefnum sem yfirmaður felur honum og falla undir starfssvið hans.
- Þekking á gerð og framreiðslu matar.
- Almenn tölvuþekking er nauðsynleg.
- Skipulag, framtakssemi og dugnaður.
- Stundvísi, reglusemi og færni í samskiptum.
- Kunnátta í skyndihjálp.
- Snyrtimennska.
- Góð íslensku- og/eða enskukunnátta er skilyrði.
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Enska
Íslenska
















