Akureyri
Akureyri
Akureyri

Þjónustu- og menningarsvið: Umsjón mötuneytis

Þjónustu- og menningarsvið óskar eftir því að ráða matreiðslumann til að annast mötuneyti fyrir starfsfólk Akureyrarbæjar í Ráðhúsi og Glerárgötu 26.

Við leitum að öflugum liðsfélaga sem býr yfir góðri samskiptafærni, þjónustulund og hefur metnað og hæfni til að bjóða upp á ferskan, hollan og fjölbreyttan mat.

Um fullt starf, ótímabundið, er að ræða sem hefur í för með sér 36 stunda vinnuviku og þónokkurn sveigjanleika.

Kostur er ef viðkomandi getur hafið störf fljótlega.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Matseld og framreiðsla fyrir starfsfólk í Ráðhúsi og Glerárgötu 26
  • Matseðlagerð, innkaup, pantanir, birgðavarsla, frágangur, uppvask og allur daglegur rekstur mötuneytis
  • Kaffiveitingar vegna funda og viðburða
  • Áritun reikninga og uppgjör
  • Þátttaka í mótun stefnu og áherslna fyrir mötuneytið, þróun þjónustunnar í samræmi við þarfir notenda
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun í matvælagreinum, s.s. matartækninám
  • Sveinspróf í matreiðslu er mikill kostur
  • Reynsla af sambærilegu starfi
  • Hreinlæti og snyrtimennska
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Mjög góð samskiptafærni
  • Rík þjónustulund
  • Frumkvæði, launsamiðuð hugsun og vilji til að þróa þjónustuna
  • Bílpróf
  • Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Auglýsing birt21. apríl 2026
Umsóknarfrestur10. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Geislagata 9, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn tölvukunnáttaPathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.EldhússtörfPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.HugmyndaauðgiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MatreiðsluiðnPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.NákvæmniPathCreated with Sketch.NýjungagirniPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.ÞjónustulundPathCreated with Sketch.Þolinmæði
Starfsgreinar
Starfsmerkingar