
Borgarbyggð
Borgarbyggð er fallegt, friðsælt og fjölskylduvænt sveitarfélag á Vesturlandi, í nálægð við allt sem skiptir máli.
Við leitum eftir öflugum og drífandi einstaklingum sem sýna metnað og frumkvæði í starfi. Borgarbyggð hefur einsett sér að leggja aukna áherslu á notendamiðaða þjónustuhönnun, tækniframþróun og þjónustu við íbúa og viðskiptavini.
Í þeirri vegferð sem er framundan ætlum við að efla þjónustu sveitarfélagsins og vera tilbúin að mæta áskorunum framtíðarinnar. Áhersla verður lögð á þverfaglegt samstarf í verkefnamiðuðu umhverfi og frekari þróun innra starfs sem leiði í senn til framúrskarandi þjónustu og öflugs vinnuumhverfis.
Gildi Borgarbyggðar í starfsmannamálum eru: virðing, áreiðanleiki og metnaður sem höfð eru að leiðarsljósi í stefnum og markmiðum í starfi.

Forstöðumaður íþróttamannvirkja
Borgarbyggð auglýsir laust til umsóknar starf forstöðumanns íþróttamannvirkja.
Leitað er að öflugum og metnaðarfullum leiðtoga. Starfið felur í sér faglega og fjárhagslega ábyrgð á starfsemi íþróttamannvirkja í Borgarbyggð auk mótunar og eftirfylgni á þjónustustefnu. Starfið styður einnig við hverskonar íþróttastarfsemi í sveitarfélaginu.
Til íþróttamannvirkja teljast Íþróttamiðstöð og sundlaug í Borgarnesi, Kleppjárnsreykjum og Varmalandi ásamt grasvöllum og battavöllum við alla grunnskóla í sveitafélaginu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Fagleg og fjárhagsleg ábyrgð á starfsemi íþróttamannvirkja í Borgarbyggð
- Rekstur og dagleg stjórnun íþróttamannvirkja
- Stefnumótun og gerð starfs- og fjárhagsáætlana
- Stjórnun starfsmannamála og ábyrgð og eftirfylgni í framkvæmd starfsmannastefnu
- Náið samband við íþrótta- og tómstundafélög, UMSB, skólasamfélagið og aðra sem sinna tómstundamálum, vinnur að mótun og eftirfylgd þjónustustefnu með hagaðilum
- Hefur umsjón með íþróttasvæðum og knattspyrnuvöllum sveitarfélagsins og hefur eftirlit með samningum um rekstur þessara svæða
- Annast daglega umsjón og eftirlit með framkvæmdum og viðhalds mannvirkja, tækja og búnaðar
- Annast markaðs- og kynningarmál
- Starfið er í þróun og ljóst er að fleiri verkefni tengd íþrótta og tómstundamálum muni falla undir starfið t.d skipulag á tímum í íþróttamannvirkjum og aukið samstarf við íþróttafélög
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af rekstri og stjórnun
- Leiðtogahæfni, góð samskiptahæfni og þjónustulund
- Faglegur metnaður
- Sjálfstæð vinnubrögð, skipulagshæfileikar og frumkvæði
- Góð kunnátta í íslensku máli í ræðu og riti
- Góð tölvukunnátta
- Hreint sakavottorð
Fríðindi í starfi
- 36 klst. vinnuvika
- Heilsuræktarstyrkur
- Sveiganlegur vinnutími
- Ýmis afsláttarkjör
Auglýsing birt28. apríl 2026
Umsóknarfrestur12. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Þorsteinsgata 1-3 1R, 310 Borgarnes
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiHreint sakavottorðJákvæðniLeiðtogahæfniSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðStarfsmannahaldÞjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (7)

Deildarstjóri við leikskólann Klettaborg
Borgarbyggð

Deildarstjóri í Uglukletti
Borgarbyggð

Leiðbeinandi í sumarfjöri
Borgarbyggð

Stuðningsfulltrúi í frístund Borgarnesi
Borgarbyggð

Leikskólakennari á Hnoðraból
Borgarbyggð

Stuðningsfulltrúi í frístund á Hvanneyri
Borgarbyggð

Flokkstjórar í Vinnuskóla Borgarbyggðar
Borgarbyggð
Sambærileg störf (7)

Forstöðumaður stafrænnar þróunar og upplýsingatækni
Vínbúðin

Sviðsstjóri fjármála og rekstrar
Háskólinn á Akureyri

Stöðvarstjóri Þjórsársvæðis
Landsvirkjun

Framkvæmdastjóri
Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Íslands

Forstöðumaður Dalslaugar
Menningar- og íþróttasvið Reykjavíkurborgar

Fjármála- og rekstrarstjóri Alva Capital
Alva Capital ehf.

Forstöðumaður
Þroskahjálp á Suðurnesjum