Intellecta
Intellecta
Intellecta

Sérfræðingur í ráðningum - vilt þú hjálpa okkur að finna rétta fólkið? 

Hefur þú brennandi áhuga á að leiða fólk saman?

Við í ráðningardeild Intellecta óskum eftir að bæta öflugum einstaklingi í teymið okkar.

Sem sérfræðingur í ráðningum munt þú finna rétta fólkið í störf sérfræðinga og stjórnenda, bæði fyrir einkamarkaðinn og hið opinbera. Verkefnin eru fjölbreytt og færð þú tækifæri til að leiða verkefnin þín frá A-Ö, með áherslu á leitarverkefni (e. head-hunting).

Við leitum að einstaklingi sem nýtur þess að hafa frumkvæði, koma hlutum í framkvæmd og eiga samskipti við fólk. Starfið snýst um að finna réttu einstaklingana í fjölbreytt störf og byggja upp tengsl við fólk sem er ekki endilega í virkri atvinnuleit. Þú þarft því að hafa þor til að hafa samband, forvitni til að leita nýrra leiða og drifkraft til að fylgja verkefnum eftir til enda.

Við erum fagleg og skilum vönduðum og árangursríkum ráðningum. Ef þú hefur afburða skipulagsfærni, auga fyrir smáatriðum, getu til að keyra verkefni áfram af fagmennsku ásamt því að búa yfir góðri íslenskukunnáttu er líklegt að þú náir góðum árangri í þessu starfi.


Við leitum að einstaklingi sem:

  • Er sölu- og markmiðadrifinn .
  • Hefur framúrskarandi samskiptahæfni og sannfæringarkraft.
  • Hefur þrautseigju til að halda áfram þar til markmiðinu er náð.
  • Nýtur þess að vinna sjálfstætt og stýra eigin verkefnum.
  • Hefur gott auga fyrir öflugu fólki.
  • Nýtur þess að leggja sitt af mörkum svo teymið nái árangri.
  • Hefur áhuga á íslensku atvinnulífi og því fólki sem mótar það.


Það er mikill kostur ef þú ert með gott tengslanet í íslensku atvinnulífi ásamt háskólamenntun, reynslu af stjórnun, ráðgjöf, ráðningum og/eða viðskiptaþróun.

Ráðningarteymi Intellecta samanstendur af fimm kraftmiklum og samhentum ráðgjöfum sem bíða spennt eftir nýjum liðsfélaga. Það er alltaf líf og fjör og mikið að gera, en við elskum að hafa gaman en gefum samt aldrei afslátt af fagmennskunni.

Um Intellecta:

Intellecta var stofnað árið 2000 og starfar á tveimur sviðum: ráðgjöf og ráðningum. Við vinnum með stjórnum og æðstu stjórnendum við að bæta rekstur og auka verðmæti fyrirtækja og stofnana. Ráðgjafar okkar hafa sterkan faglegan bakgrunn og víðtæka alþjóðlega reynslu. Ráðgjafarsvið Intellecta sinnir verkefnum s.s. á sviði upplýsingatækni, stefnumótunar og stjórnunar auk þess sem kjarakönnun Intellecta hefur veitt stjórnum og stjórnendum góða innsýn inn í þróun launa á markaði.

Intellecta er staðsett í glæsilegu húsnæði að Höfðabakka 9, þar sem boðið er upp á fyrsta flokks vinnuaðstöðu. Nánari upplýsingar um fyrirtækið má finna á www.intellecta.is.

Umsóknarfrestur er til og með 6. ágúst 2026 en unnið verður úr umsóknum jafnóðum. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir hæfni sem nýtist í starfi. Við svörum öllum umsækjendum að ráðningu lokinni.

Nánari upplýsingar veita Thelma Kristín Kvaran ([email protected]) og Sigríður Svava Sandholt ([email protected]).

Auglýsing birt22. júlí 2026
Umsóknarfrestur6. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Höfðabakki 9, 110 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar