

Þroskaþjálfi/sérkennari/iðjuþjálfi óskast í Kópavogsskóla
Við í Kópavogsskóla erum að leita að þroskaþjálfa, sérkennara eða iðjuþjálfa til starfa í sérdeild skólans. Um er að ræða 80 til 100% starfshlutfall. Ráðið er í starfið frá 1. ágúst 2026.
Kópavogsskóli er heildstæður grunnskóli með um 420 nemendur og um 75 starfsmenn. Í skólanum er sérdeild fyrir nemendur á mið- og unglingastigi og frístundaheimili fyrir nemendur í 1. – 4. bekk. Unnið er samkvæmt uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar og lögð er áhersla á skapandi og framsækið skólastarf og ýmis þróunarverkefni eru í gangi.
Í Kópavogsskóla er allir kennarar og nemendur í 1. – 10. bekk með spjaldtölvur og mikil áhersla er lögð á einstaklingsmiðun náms og fjölbreytta kennsluhætti. Einkennisorð skólans eru vinátta, virðing, vellíðan. Góður starfsandi er í skólanum.
- Vinna með nemendum með þroskafrávik og fjölbreyttar sérþarfir
- Taka þátt í gerð og eftirfylgni einstaklingsnámskráa
- Þjálfa og efla félagsfærni, sjálfstæði og vellíðan nemenda
- Útbúa og nýta sjónrænt skipulag í daglegu starfi
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
- Vinna í teymi með öðrum kennurum og fagfólki
- Menntun og sérhæfing sem nýtist í starfi
- Starfsleyfi/leyfisbréf viðeigandi fagstéttar (fylgi umsókn)
- Reynsla af starfi með nemendum með sérþarfir er kostur
- Þekking á fjölbreyttum kennsluaðferðum
- Færni í gerð sjónræns skipulags
- Áhugi á teymiskennslu og þverfaglegu samstarfi
- Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Jákvæðni og faglegur metnaður
- Mjög góð þekking á Mentor, upplýsingatækni og notkun rafrænna miðla í kennslu og starfi
- Mjög góð íslenskukunnátta
- Stundvísi og áreiðanleiki
Starfsmenn Kópavogsbæjar fá frítt í sund í Kópavogi.
Íslenska










