Kópavogsskóli
Kópavogsskóli
Kópavogsskóli

Skrifstofustjóri í Kópavogsskóla

Kópavogsskóli auglýsir eftir öflugum skrifstofustjóra til að bætast í hópinn okkar í 90 til 100% starf frá og með 1. ágúst 2026 með möguleika á ráðningu fyrr.

Kópavogsskóli er heildstæður grunnskóli með um 420 frábæra nemendur og um 75 kraftmikla starfsmenn. Í skólanum er sérdeild fyrir nemendur á mið- og unglingastigi og frístundaheimili fyrir nemendur í 1. – 4. bekk. Unnið er samkvæmt uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar og lögð er áhersla á skapandi og framsækið skólastarf.

Einkennisorð skólans eru vinátta, virðing, vellíðan. Góður starfsandi er í skólanum.

Upplýsingar um Kópavogsskóla og skólastarfið er að finna á www.kopavogsskoli.is.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón og ábyrgð á daglegum rekstri skrifstofu.
  • Móttaka og þjónusta við nemendur, foreldra, starfsfólk og gesti skólans.
  • Símsvörun og miðlun skilaboða til viðeigandi aðila innan og utan bæjarins.
  • Umsýsla, skjölun og frágangur gagna s.s. nemenda- og starfsmannagögn.
  • Umsjón með viðveruskráningu starfsmanna í Vinnustund.
  • Umsjón með skráningu nemenda, forfallaskráningu og skipulagi forfalla.
  • Innkaup og birgðahald fyrir skrifstofu og skólahald.
  • Stuðla að velferð nemenda og góðum samskiptum við forsjáraðila í samstarfi við fagfólk skólans.
  • Umsjón með túlkaþjónustu.
  • Önnur tilfallandi verkefni í samstarfi við skólastjóra og stjórnendur.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi kostur.
  • Mjög góð þekking og/eða reynsla af skrifstofustörfum, helst innan skóla- eða opinberrar stjórnsýslu.
  • Góð tölvukunnátta og færni í ritvinnslu og almennri skrifstofuvinnu.
  • Þekking á upplýsingakerfum eins og Mentor er mikill kostur.
  • Þekking og reynsla á Vinnustund er mikill kostur.
  • Frábær hæfni í mannlegum samskiptum, þjónustulund og fagleg framkoma.
  • Góð skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Stundvísi og áreiðanleiki.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli.
Fríðindi í starfi

Starfsmenn Kópavogsbæjar fá frían aðgang í sundlaugar bæjarins

Auglýsing birt10. apríl 2026
Umsóknarfrestur24. apríl 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Digranesvegur 15, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar