

Leikskólakennari - velkomin í hópinn í einn fallegasta leikskóla landsins
Leikskólakennari í Urriðaból 2 við Holtsveg
Leikskólinn Urriðaból 2 er 6 deilda leikskóli staðssettur að Holtsvegi 20 í fallegu og fjölbreyttu umhverfi í Urriðaholti 210 Garðabæ. Í leikskólanum dvelja börn á aldrinum 1 árs til 6 ára.
Einkunnarorð leikskólans eru: Heilbrigð sál í hraustum líkama.
Við tökum vel á móti nýju og áhugasömu starfsfólki og leggjum áherslu á jákvætt og uppbyggilegt starfsumhverfi sem er í mótun.
Við leitum að jákvæðu, stundvísu, ábyrgum og heiðarlegu starfsfólki til að ganga til liðs við metnaðarfullan og fjölbreyttan starfsmannahóp leikskólans. Okkur vantar starfsfólk fyrir næsta skólaár - hér er því gott tækifæri til að koma inn í leikskóla þar sem starfsaðstæður eru til fyrirmyndar.
Nánari upplýsingar um starfið veita Jónína Einarsdóttir, leikskólastjóri, Elsa María Gunnarsdóttir aðstoðarleikskólastjóri í síma 570-4830. Einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið [email protected] eða [email protected]
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
- Vinnur að uppeldi og menntun barnanna. Fylgist vel með velferð þeirra og hlúir að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þau fái notið sín sem einstaklingar.
- Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar undir stjórn deildarstjóra.
- Sinnir þeim verkefnum er varðar uppeldi og menntun barnanna sem yfirmaður felur honum.
- Tekur þátt í gerð skólanámskrár, mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum undir stjórn leikskólastjóra
- Leyfisbréf til kennslu*
- Reynsla af starfi á leikskólastigi
- Áhugi á að vinna með börnum
- Færni í samskiptum og samstarfshæfileikar
- Vilji til að taka þátt í þróun á faglegu starfi og láta til sín taka
- Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og faglegur metnaður
- Lausnarmiðun
- Góð íslenskukunnátta og ritfærni er skilyrði. Miðað er við stig B2 samkvæmt samevrópska tungumálarammanum
- Góð tölvukunnátta
- Heilsuhvetjandi starfsumhverfi
- Samgöngustyrkur
- Viðverustefna
- Heilsustyrkur
- Vinnustytting
- Metnaðarfullt starfsumhverfi
- 3 heilsusamlegar máltíðir á dag
- Starfsmannaafsláttur á leikskólagjöldum
Íslenska










