
Þroskaþjálfi Frístundaheimilisins Hóla við Sunnulækjarskóla á Selfossi
Sveitarfélagið Árborg leitar að þroskaþjálfa fyrir frístundaheimilið Hóla við Sunnulækjarskóla á Selfossi. Um er að ræða 60-100% tímabundið starf með möguleika á áframhaldandi starfi..
Leitað er að reglusömum og áreiðanlegum einstaklingi sem hefur m.a. til að bera frumkvæði, góða samskiptahæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Frístundaheimilið er með aðstöðu inn í húsnæði Sunnulækjarskóla. Á frístundaheimilinu er boðið uppá metnaðarfullt og fjölbreytt frístundastarf þegar hefðbundnum skóladegi lýkur.
Mikil uppbygging hefur átt sér stað í Sveitarfélaginu Árborg í frístundamálum síðustu misseri og mikla grósku má finna innan frístundaþjónustu Árborgar.
Um er að ræða spennandi og áhugavert starf þar sem er boðið upp á sveigjanlegt og hvetjandi starfsumhverfi.
Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1100 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.
Helsta hlutverk þroskaþjálfa snýr að starfi með börnum með fötlunargreiningar og aðrar sértækar stuðningsþarfir. Þroskaþjálfinn mun sinna verkefnastýringu á tilteknum verkefnum. Hann fylgir eftir málefnum barna með sérþarfir og aðstoðar yfirþroskaþjálfa frístundaheimila eftir þörfum. M.a. með að sitja teymisfundi. Þroskaþjálfi frístundaheimilisins Hóla viðheldur og þróar sérþekkingu og nýbreytni í frístundastarfi fyrir börn með sértækar stuðningsþarfir á frístundaheimilinu. Viðkomandi mun leiðbeina og handleiða stuðningsfulltrúa á frístundaheimilinu í starfi með börnum með sértækar stuðningsþarfir ásamt því að vinna sjálfur með börnum á opnunartíma frístundaheimilisins.
Þroskaþjálfi vinnur að því að auka sjálfstæði og færni barna með sértækan stuðning félagslega, í óformlegu námi og daglegum athöfnum. Að taka virkan þátt í faglegu starfi frístundaheimilisins með áherslu á velferð og öryggi skjólstæðinga þess.
Þroskaþjálfi starfar samkvæmt stefnu frístundaheimilisins sem tekur m.a. mið af menntastefnu sveitarfélagsins Árborgar, leiðarljósi mennta- og menningarmálaráðuneytisins um frístundaheimili, lögum og reglugerðum um grunnskóla og öðrum lögum er við eiga.
· Háskólamenntun á sviði þroskaþjálfunar og tilheyrandi starfsleyfi
· Reynsla af og áhugi á æskulýðsstarfi
· Frumkvæði, sjálfstæð, fagleg og skipulögð vinnubrögð
· Áhugi og metnaður á vinnu með börnum og fólki
· Góð hæfni í mannlegum samskiptum áskilin
· Almenn tölvukunnátta
Íslenska










