
Sérfræðingur Frístundaheimilisins Hóla við Sunnulækjarskóla á Selfossi
Sveitarfélagið Árborg leitar að sérfræðingi fyrir frístundaheimilið Hóla við Sunnulækjarskóla á Selfossi. Um er að ræða a.m.k. 85% starf ótímabundið.
Leitað er að reglusömum og áreiðanlegum einstaklingi sem hefur m.a. til að bera frumkvæði, góða samskiptahæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Frístundaheimilið er með aðstöðu inn í húsnæði Sunnulækjarskóla. Á frístundaheimilinu er boðið uppá metnaðarfullt og fjölbreytt frístundastarf þegar hefðbundnum skóladegi lýkur.
Mikil uppbygging hefur átt sér stað í Sveitarfélaginu Árborg í frístundamálum síðustu misseri og mikla grósku má finna innan frístundaþjónustu Árborgar.
Um er að ræða spennandi og áhugavert starf þar sem er boðið upp á sveigjanlegt og hvetjandi starfsumhverfi.
Helstu verkefni:
Helsta hlutverk sérfræðings snýr að þátttöku í allri starfsemi frístundaheimilisins og verkefnastýringu á tilteknum verkefnum. Þá er sérfræðingur jafnframt staðgengill forstöðumanns. Hann fylgir eftir málefnum barna með sérþarfir og aðstoðar yfirþroskaþjálfa frístundaheimila eftir þörfum.
Sérfræðingur vinnur að því að auka sjálfstæði og færni barna félagslega, í óformlegu námi og daglegum athöfnum. Að taka virkan þátt í faglegu starfi frístundaheimilisins með áherslu á velferð og öryggi skjólstæðinga þess.
Starfsmaður starfar samkvæmt stefnu frístundaheimilisins sem tekur m.a. mið af menntastefnu sveitarfélagsins Árborgar, leiðarljósi mennta- og menningarmálaráðuneytisins um frístundaheimili, lögum og reglugerðum um grunnskóla og öðrum lögum er við eiga.
Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1100 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.
- Háskólamenntun af tómstunda-, uppeldissviði eða önnur sambærileg menntun
- Reynsla af og áhugi á æskulýðsstarfi áskilin
- Frumkvæði, sjálfstæð, fagleg og skipulögð vinnubrögð
- Áhugi og metnaður á vinnu með börnum og fólki
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum áskilin
- Almenn tölvukunnátta
Íslenska










