Suðurnesjabær
Suðurnesjabær

Deildarstjóri stoðþjónustu - Gerðaskóli

Gerðaskóli leitar að metnaðarfullum og drífandi einstaklingi sem býr yfir þekkingu og reynslu af starfi í grunnskóla. Deildarstjóri er hluti af stjórnunarteymi skólans og tekur virkan þátt í faglegum ákvörðunum og skipulagi á innra starfi skólans.

Í Gerðaskóla eru um 250 nemendur og leggur skólinn áherslu á samþættingu námsgreina, útinám, hæfnimiðað námsmat og skynvænt námsumhverfi með það að markmiði að allir fái tækifæri til að vera besta útgáfan af sjálfum sér í leik og starfi.

Gildi skólans eru; virðing – ábyrgð - árangur – ánægja

Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðu skólans, www.gerdaskoli.is

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Ber ábyrgð á daglegri starfsemi skóla í samvinnu við aðra skólastjórnendur
  • Ber ábyrgð á verkefnastjórn sérkennslu og stoðþjónustu skólans
  • Sinnir kennsluskyldu í stoðþjónustu eftir samkomulagi og stjórnunarhlutfalli
  • Stýrir fundum nemendaverndarráðs og er í samskiptum við fulltrúa þeirra
  • Annast áætlana- og skýrslugerð vegna sér- og stuðningskennslu
  • Aðstoðar umsjónar- og sérgreinakennara við að aðlaga nám einsakra nemanda sem njóta stuðnings og sérkennslu
  • Hefur umsjón með samstarfi vegna einstakra nemendamála við stoðþjónustu, ráðgjöf og sérkennsluaðila
  • Styður við innleiðingu samþættingar í þágu farsældar barna
  • Sinnir öðrum störfum og verkefnum sem honum eru falin af skólastjórnendum og falla undir verksvið deildarstjóra stoðþjónustu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf kennara (fylgi með umsókn)
  • Framhaldsmenntun á sviði sérkennslu, þroskaþjálfa, atferlisþjálfa eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi
  • Kennslureynsla í grunnskóla
  • Stjórnunarreynsla æskileg
  • Góð þekking á náms- og kennsluaðferðum og hæfni til að miðla þeim
  • Reynsla af verkefnastýringu æskileg
  • Leiðtogafærni og frumkvæði
  • Geta til að vinna sjálfstætt og í teymum
  • Þjónustulund og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
  • Góð hæfni til að tjá sig í ræðu og riti, á íslensku og ensku

Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2026.

Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Umsóknarfrestur er til og með 13. apríl 2026.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Jón Ragnar Ástþórsson, skólastjóri Gerðaskóla, [email protected] eða í síma 425-3050.

Umsókn fylgir ítarleg starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar ásamt rökstuðningi fyrir hæfi til að sinna starfinu.

Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Auglýsing birt1. apríl 2026
Umsóknarfrestur13. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Garðbraut 90, 250 Garður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar