Grunnskólinn á Hellu
Grunnskólinn á Hellu
Grunnskólinn á Hellu

Kennarar óskast við Grunnskólann á Hellu

Grunnskólinn Hellu auglýsir stöður kennara/umsjónarkennara á yngsta, mið- og elsta stigi fyrir skólaárið 2026-2027

Hæfnikröfur

  • Kennararéttindi eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Kennslureynsla æskileg
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð

Í Grunnskólanum Hellu verða um 190 nemendur í 1.-10. bekk skólaárið 2026-2027. Aðstaða kennara og nemenda er til fyrirmyndar í nýrri skólabyggingu á Hellu.

Grunnskólinn Hellu byggir á uppeldisstefnunni „Jákvæður agi“. Sú stefna gengur út á að móta umhverfi í skólum sem einkennist af umhyggju og byggist á gagnkvæmri virðingu, reisn, vinsemd og festu.
Grunnskólinn Hellu er Grænfánaskóli.

Boðið er upp á aðstoð við húsnæðisleit í nágrenninu sé þess óskað.

Frekari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðu hans með því að smella hér.

Vinsamlegast hafið samband við undirritaða til að fá frekari upplýsingar:

  • Sigurjón Bjarnason, skólastjóri, á netfangið [email protected] eða í síma 488 7021 / 8964841
  • Kristinn Ingi Austmar Guðnas., á netfangið [email protected] eða í síma 488 7022 / 8481467

Umsóknarfrestur er til 20. apríl 2026

Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Auglýsing birt27. mars 2026
Umsóknarfrestur20. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Útskálar 6-8, 850 Hella
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar