
Kennarar í Gerðaskóla skólaárið 2026-2027
Gerðaskóli auglýsir eftir metnaðarfullum kennurum í fullt starf fyrir skólaárið 2026-2027.
Umsjónarkennari á yngsta stigi
Umsjónarkennari á miðstigi
Umsjónarkennari á unglingastigi
Heimilisfræðikennari
Kennari í hönnun og smíði
Sérkennari í námsveri
Tónmenntakennari
Íþróttakennari
Umsóknarfrestur er til og með 13. apríl 2026 og ráðið verður í stöðurnar frá 1. ágúst 2026.
Í Gerðaskóla eru um 250 nemendur og leggur skólinn áherslu á samþættingu námsgreina, útinám, hæfnimiðað námsmat og skynvænt námsumhverfi með það að markmiði að allir fái tækifæri til að vera besta útgáfan af sjálfum sér í leik og starfi.
Gildi skólans eru; virðing – ábyrgð - árangur – ánægja
Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðu skólans, www.gerdaskoli.is
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf kennara (fylgi með umsókn)
- Reynsla af kennslu í grunnskóla kostur
- Metnaður og einlægur áhugi á að vinna með börnum og unglingum á faglegan, fjölbreyttan og skapandi hátt
- Jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum
- Áhugi og metnaður fyrir góðum foreldrasamskiptum.
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Skapandi hugsun og áhugi á að starfa í metnaðarfullu umhverfi.
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði
Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags grunnskólakennara.
Umsóknarfrestur er til og með 13. apríl 2026.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Jón Ragnar Ástþórsson, skólastjóri Gerðaskóla, [email protected] eða í síma 425-3050.
Umsókn skal fylgja starfsferilskrá, afrit af leyfisbréfi til að nota starfsheitið kennari, kynningarbréf ásamt upplýsingum um umsagnaraðila og annað er málið varðar.
Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Íslenska










