

Þjónustufulltrúi í vöruhúsi Securitas
Við leitum að liðsauka í okkar frábæra teymi!
Við hjá Securitas leitum að jákvæðum og þjónustulunduðum einstaklingi til að slást í hópinn okkar í vöruhúsinu við Tunguháls 11. Viðkomandi aðili þarf að vera tilbúinn til að taka þátt í að byggja upp og viðhalda góðu þjónustustigi í vöruhúsi Securitas. Lögð er rík áhersla á jákvætt hugarfar, framúrskarandi þjónustu, sjálfstæð vinnubrögð og góðan liðsanda.
Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni sem við kemur móttöku og frágangi á vörum ásamt afgreiðslu pantana og samskiptum við innri og ytri viðskiptavini.
Ef þú...
- býrð yfir mikilli þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
- sýnir frumkvæði í starfi og metnað til að vinna sjálfstætt
- hefur gott vald á talaðri og skrifaðri íslensku
...þá gætum við verið að leita af þér!
Í boði er spennandi starf í góðu starfsumhverfi í höfuðstöðvum Securitas við Tunguháls 11. Um er að ræða fullt starf og er vinnutíminn frá kl. 8:00-16:00 virka daga.
Starfið hentar öllum kynjum 20 ára og eldri sem eru með hreint sakavottorð og gilt ökuskírteini. Umsóknarfrestur er til og með 14.júní nk. Nánari upplýsingar veitir Helga Guðrún Lárusdóttir, deildastjóri, í síma 580-7000.
Íslenska










