
Aðstoðarverkstjóri í tiltekt
Parlogis leitar að öflugum og nákvæmum verkstjóra í vöruafgreiðslu fyrirtækisins að Krókhálsi. Viðkomandi þarf að hafa góða samskipta- og skipulagshæfni, metnað og hæfni til að vinna með og í hóp. Lögð er áhersla á vönduð vinnubrögð og jákvæðni
Við leitum að duglegum og nákvæmum starfsmanni til að ganga til liðs við teymi okkar í vöruhúsi Parlogis
Vinnutíminn er frá kl. 06:30 til 15:00 mánudaga - fimmtudaga og 06:30-14:15 föstudaga
Viðkomandi þarf að geta hafið störf í sem fyrst
Helstu verkefni:
- Aðstoð við að stýra daglegu starfi
- Þjónusta við viðskiptavini
- Skipuleggur tiltekt í samræmi við dreifingaráætlun Parlogis
Hæfniskröfur
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði. Lesin og töluð.
- Samskipta- og samstarfshæfni
- Nákvæmni og samviskusemi
- Stundvísi og dugnaður
- Snyrtimennska
- Hreint sakavottorð
- Tölvufærni
- Lyftarapróf er kostur
- Reynsla af sambærilegum störfum kostur
Fríðindi í starfi
- Hollur matur í hádeginu og hollt millimál
- Reglulegir heilsufyrirlestra á vinnutíma
- Sérkjör á heilsuvörum, vítamínum og íþróttafatnaði
- Styrkir úr heilsusjóði Ósa sem hvetur til heilsueflingar starfsmannahópa
Parlogis er leiðandi þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í vörustjórnun fyrir lyfja-, heilbrigðis- og neytendavörugeirann á Íslandi.Hjá okkur starfa 80 manns í góðu starfsumhverfi. Helstu viðskiptavinir eru sjúkrahús, apótek, heilsugæslur og dagvöruverslanir um allt land. Parlogis leggur metnað sinn í að vera fyrirmyndarvinnustaður þar sem lögð er áhersla á jafnrétti og fjölskylduvænt umhverfi.
Íslenska










