
Vegagerðin
Vegagerðin þróar og annast samgöngukerfi, á sjó og landi, á sem hagkvæmastan hátt með þarfir samfélagsins, öryggi vegfarenda og umhverfissjónarmið að leiðarljósi.
Um 370 starfsmenn Vegagerðarinnar starfa á 18 starfsstöðvum víðsvegar um landið.

Verkstjóri á þjónustustöð, Patreksfjörður
Starf verkstjóra við þjónustustöðina á Patreksfirði er laust til umsóknar. Verkstjóri hefur umsjón og eftirlit með verkefnum á þjónustustöðinni og unnið sé í samræmi við áætlanir og öryggisstefnu Vegagerðarinnar. Verkstjóri er staðgengill yfirverkstjóra.
Vegagerðin rekur 18 þjónustustöðvar víðs vegar um landið og sjá þær um almenna þjónustu og viðhald vega og vegbúnaðar á sínu starfssvæði. Hlutverk þjónustustöðva er að sjá til þess að ástand vega, vegsvæða og samgöngumannvirkja sé þannig að umferð gangi sem greiðast og öruggast fyrir sig, allan ársins hring.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almenn þjónusta, eftirlit og verkstjórn í viðhaldi vega, jarðganga og vegbúnaðar á svæði þjónustustöðvarinnar.
- Eftirlit í vetrarþjónustu með færð á vegum, upplýsingagjöf og stjórnun snjómoksturs í samvinnu við yfirverkstjóra og vaktstöð Vegagerðarinnar.
- Samskipti og eftirlit með verktökum.
- Vinnur bakvaktir í vetrarþjónustu og er aðgengilegur ef þörf skapast, s.s. vegna veðurs, náttúruvár og slysa.
- Gætir að öryggi starfsfólks þjónustustöðvar og vegfarenda á vinnusvæðum og fylgir öryggisreglum þar að lútandi.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Iðnmenntun æskileg eða annað nám sem nýtist í starfi.
- Reynsla af stjórnun æskileg.
- Vinnuverndar- og öryggisnámskeið æskileg.
- Almenn ökuréttindi er skilyrði, meirapróf og/eða vinnuvélaréttindi æskileg.
- Starfsreynsla sem nýtist í starfi.
- Góð íslensku- og enskukunnátta.
- Mjög góð tölvukunnátta.
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
- Frumkvæði og hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í hóp.
- Góð öryggisvitund.
Auglýsing birt4. júní 2026
Umsóknarfrestur22. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Mikladalsvegur 9, 450 Patreksfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Sviðsmaður
Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús

Vinna á dælubíl / Pump truck operator
Stíflutækni

Framleiðslustarf á Dalvík - vaktavinna / Production work in Dalvík - shift work
Sæplast Iceland ehf

Branch Operations Manager
Indie Campers

Hópstjóri á Verkstæði
Toyota

Laus störf í byggingavinnu, hellulagnir, yfirborðsfrágang og jarðvinnu
PK Verk ehf.

Verka- og vélamenn
Garðlist ehf

Aðstoðarverkstjóri á Málningar- og réttingarverkstæði Toyota Kauptúni
Toyota

Starfsmaður í framleiðslu og merkingar
Signa ehf

Infrastructure Technician – Piping & Cooling Systems
Verne Global ehf

Customer Support Supervisor
Verne Global ehf

Við leitum að öflugum liðsfélaga í gufuveitu
Orka náttúrunnar