
Raftækjalagerinn
Raftækjalagerinn er hluti af Heimilistækjasamstæðunni en auk lagersins rekur fyrirtækið verslanirnar Heimilistæki, Tölvulistann, Rafland, Byggt og búið, Kúnígúnd og Iittala búðina, heildsöluna Ásbjörn Ólafsson og verkstæði.
Raftækjalagerinn er vöruhús allra félaganna og sér um að halda góðu skipulagi á vörum og birgðum hvers félags fyrir sig. Lagerinn okkar er með stærsta smásöluróbót landsins sem tekur ríflega 37 þúsund kassa. Viðskiptavinir sem kaupa stór heimilistæki geta sótt vörurnará lagerinn og starfsfólk Raftækjalagerins sér um heimsendingarþjónustu stórra tækja á höfuðborgar-svæðinu. Þá sér lagerinn sér einnig um að afgreiða út netpantanir og endurnýja birgðir í verslunum.
Hjá samstæðunni starfa tæplega 200 einstaklinga í fjölbreyttum störfum þar sem lögð er áhersla á jákvætt starfsumhverfi og vinalegan starfsanda.

Meiraprófsbílstjóri
Raftækjalagerinn leitar að öflugum meiraprófsbílstjóra (C réttindi) á lager fyrirtækisins. Starfið felur í sér útkeyrslu til og frá lagernum á flutningastöðvar, til verslana eða viðskiptavina fyrirtækisins auk annarra tilfallandi verkefna á lager.
Vinnutími:
Vinnutími er kl. 8–16 virka daga tvær af hverjum þremur vikum. Þriðju vikuna er vinnutími kl. 10–18. Gert er ráð fyrir að starfsfólk taki helgarvaktir skv. samkomulagi.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Akstur og afhending á vörum.
- Samskipti við viðskiptavini.
- Þrif og umhirða bifreiðar.
- Aðstoð á lager eftir þörfum, m.a. við frágang eða afhendingu vara.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Meirapróf (C).
- Lyftarapróf kostur.
- Góð samskiptahæfni, þjónustulund og jákvæðni.
- Frumkvæði og sjálfstæði vinnubrögð.
- Stundvísi og reglusemi.
- Góð íslenskukunnátta.
- 20 ára eða eldri.
- Reyklaus og heint sakavottorð.
Auglýsing birt24. apríl 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Klettagarðar 21, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
ÚtkeyrslaVöruflutningar
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Starfsmaður á lager/verslun Hafnarfirði
Klettur - sala og þjónusta ehf

Afgreiðslu- og lagerstarf og útkeyrsla. Sumar eða framtíðarstarf.
Kraftar og Afl. Motul á Íslandi.

Gæludýr.is AKUREYRI
Waterfront ehf

Sumarstarf í vöruhúsi - Byko Kjalarvogi
Byko

Lager og útkeyrsla
Ison heildverslun

Starfsmaður í íþróttamannvirki
Skautahöllin Akureyri

Fagkaup óskar eftir þjónustu og sölufulltrúum
Fagkaup þjónustudeild

Lagerstarf
Sölufélag garðyrkjumanna ehf.

Sölufulltrúi – framtíðarstarf og sumarstarf
Gæðabakstur

Öflugur bílstjóri óskast í sendibílavinnu
Akstur og flutningar

Meiraprófsbílstjórar óskast (Akureyri)
ICS ehf.

Bílstjóri í innanbæjarakstur í Reykjavík
Eimskip