Pósturinn
Pósturinn
Pósturinn

Umsjónarmaður vöruafgreiðslu

Pósturinn leitar að einstaklingi í starf umsjónarmanns vöruafgreiðslu í póstmiðstöð fyrirtækisins í Reykjavík.

Við leitum að ábyrgum og lausnamiðuðum einstaklingi til að sinna daglegri verkstjórn með ábyrgð á móttöku, geymslu og afhendingu sendinga ásamt samskiptum við innri og ytri aðila. Starfið krefst góðrar yfirsýnar, skipulagshæfni og góðrar verkstjórnar með stöðugri eftirfylgni til að tryggja að verklag, reglur og öryggiskröfur séu virtar.

Starfið hentar einstaklingi sem hefur góða yfirsýn, á auðvelt með samskipti og hefur ánægju af því að vinna í hröðu og lifandi starfsumhverfi.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Umsóknarfrestur er til og með 8. júní 2026. Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf sem greinir frá ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni í starfið. Öllum umsóknum verður svarað og farið er með umsóknir sem trúnaðarmál.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðmundur Karl Guðjónsson forstöðumaður útkeyrslu & dreifingar [email protected]

Hjá Póstinum starfar lausnamiðað starfsfólk sem tekur fagnandi á móti síbreytilegum áskorunum þar sem liðsheild, þjálfun og góður starfsandi er í forgrunni. Pósturinn leggur sitt lóð á vogarskálar til að stuðla að sjálfbærni og hefur uppfyllt öll markmið Grænna skrefa. Pósturinn er jafnlaunavottað fyrirtæki.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Dagleg verkstjórn og verkefnastýring í vöruafgreiðslu
  • Skipulagning á móttöku, flokkun og afhendingu sendinga
  • Tryggja skilvirkt flæði og góða nýtingu mannafla
  • Eftirlit með verklagi, öryggi og gæðum þjónustu
  • Samskipti við aðrar deildir og þjónustuaðila
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af verkstjórn og góð hæfni í samstarfi
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Góð íslensku- og enskukunnátta - skilyrði
  • Vinnuvélaréttindi (lyftari) – skilyrði
  • Meirapróf og ADR réttindi – kostur
Auglýsing birt27. maí 2026
Umsóknarfrestur8. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Stórhöfði 32, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ADR-réttindiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.VinnuvélaréttindiPathCreated with Sketch.Vöruflutningar
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar