

Sölu- og þjónustufulltrúi ON
Viltu þjónusta ánægðustu viðskiptavini á raforkumarkaði?
Við leitum að jákvæðum, metnaðarfullum og þjónustulunduðum einstakling í hlutverk sölu- og þjónustufulltrúa.
Um er að ræða tímabundið starf til eins árs og æskilegt að viðkomandi geti hafið störf þann 4. ágúst nk.
Ef þú hefur áhuga á að vinna í spennandi og tæknilegu starfsumhverfi þá hvetjum við þig til að skoða þetta tækifæri.
Sölu- og þjónustufulltrúar vinna á vöktum, ýmist frá 8:00 - 16:00 eða frá 9:00 - 17:00.
Stefna ON er að auka lífsgæði viðskiptavina okkar með sjálfbærri verðmætasköpun.
Við erum á réttri leið og því til staðfestingar höfum við veitt Ánægjuvoginni viðtöku undanfarin 7 ár.
Mikilvægustu verkefni sölu- og þjónustufulltrúa felast í að veita viðskiptavinum ON framúrskarandi þjónustu, jafnt í síma og í gegnum rafræna miðla.
Markmið okkar er að tryggja faglega og skilvirka þjónustu í hverju erindi, fylgja þeim eftir frá upphafi til enda og greina tækifæri til umbóta.
- Við leitum að tæknilega sinnuðum einstaklingum með góða tölvufærni
- Framúrskarandi þjónustulyndi og færni í mannlegum samskiptum
- Starfið gerir kröfu um nákvæmni og vandvirkni
- Við fögnum umsækjendum sem hafa færni í þriðja tungumáli en gerum sérstaka kröfu um íslensku- og enskukunnáttu
Íslenska
Enska










