

Lyfja Lágmúla - þjónusta og ráðgjöf á vaktarúllu
Við leitum að jákvæðum og sjálfstæðum einstaklingi með ríka þjónustulund í fullt starf við sölu og afgreiðslu í Lyfju Lágmúla. Starfið felst í að veita almenna ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum og að tryggja góða þjónustuupplifun. Um er að ræða skemmtilegt og fjölbreytt starf á líflegum vinnustað þar sem í boði eru samkeppnishæf laun og gott vinnuumhverfi.
Hlutverk og ábyrgð
- Ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum og lausasölulyfjum
- Þjónusta og almenn afgreiðlustörf
- Áfyllingar í verslun
- Afhending lyfja gegn lyfseðli
Hvaða hæfni þarft þú að hafa?
- Ríka þjónustulund og gott viðmót
- Áhuga á mannlegum samskiptum
- Áhuga á heilsu og vellíðan
- Reynsla af verslunarstörfum er skilyrði
- Reynsla af störfum í apóteki er kostur
Starfið
Um framtíðarstarf er að ræða og unnið er á vaktarúllu sem felur í sér dag-, kvöld- og helgarvaktir.
Umsækjandi þarf að hafa ágæta íslensku- og enskukunnáttu og hafa náð 18 ára aldri.
Hvers vegna Lyfja?
Lyfja er leiðandi fyrirtæki í íslenskri heilbrigðisþjónustu með það að markmiði að lengja líf og bæta lífsgæði landsmanna. Við leggjum áherslu á faglega og hlýlega þjónustu, heilsueflingu og stöðuga nýsköpun.
Við leggjum okkur fram um að skapa vinnuumhverfi þar sem starfsfólk upplifir jákvæðan starfsanda, fær tækifæri til að þróast í starfi og nýtir hæfileika sína til fulls. Við bjóðum upp á öfluga fræðslu, markvissa starfsþróun og leggjum mikla áherslu á gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs.
Lyfja rekur 44 apótek og útibú víðs vegar um landið, sem gefur starfsfólki kost á fjölbreyttum og spennandi tækifærum, hvar sem er á landinu.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Elínborg Kristjánsdóttir, lyfsali Lyfju Lágmúla í síma 533-2300 eða á [email protected]
Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.
Íslenska
Enska










