Lyfja
Lyfja
Lyfja

Vertu með frá byrjun í nýrri Lyfju Norðurhellu

Við undirbúum opnun á glænýrri verslun Lyfju að Norðurhellu í Hafnarfirði og leitum að jákvæðum og þjónustuliprum einstaklingum sem vilja taka þátt í spennandi vegferð frá fyrsta degi.

Við leitum bæði að umsjónarmanni verslunar og starfsfólki í sölu og þjónustu. Hér gefst tækifæri til að taka þátt í að byggja upp nýja verslun, skapa jákvæða vinnustaðamenningu og veita framúrskarandi þjónustu í hlýlegu og faglegu umhverfi.

Störf í boði

Umsjónarmaður verslunar

Þjónusta og ráðgjöf

Störfin heyra bæði undir lyfsala Lyfju Norðurhellu og fela í sér fjölbreytt verkefni þar sem þjónusta, samskipti, frumkvæði og góð teymisvinna skipta miklu máli.

Hvað felst í störfunum?

Umsjónarmaður verslunar

Umsjónarmaður vinnur náið með lyfsala að daglegum rekstri, skipulagi og uppbyggingu verslunarinnar. Hlutverkið snýst um að skapa jákvæða upplifun fyrir viðskiptavini og starfsfólk og vera fyrirmynd í þjónustu og fagmennsku.

Helstu verkefni:

  • Vinnur náið með lyfsala að daglegum rekstri og uppbyggingu verslunar
  • Að vera fyrirmynd í þjónustu, framkomu og fagmennsku
  • Hefur yfirsýn yfir skipulag verslunar, framstillingar og lager
  • Styður teymið sitt og stuðlar að jákvæðum starfsanda
  • Byggir upp góð samskipti við viðskiptavini og starfsfólk
  • Veitir ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum og lausasölulyfjum

Þjónusta og ráðgjöf

  • Ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum og lausasölulyfjum
  • Þjónusta og almenn afgreiðslustörf
  • Áfyllingar í verslun
  • Afhending lyfja gegn lyfseðli

Hverjum leitum við að?

Við leitum að einstaklingum sem:

  • Eru með ríka þjónustulund og gott viðmót
  • Hafa frumkvæði og sýna sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Hafa góða samskiptahæfni og faglega framkomu
  • Hafa áhuga á heilsu og vellíðan
  • Hafa ánægju af því að vinna með fólki
  • Hafa góða íslenskukunnáttu

Um framtíðarstarf er að ræða og vinnutími verður samkvæmt samkomulagi á opnunartíma verslunar:

  • Mán-Fös 09:00-18:00
  • Lau 10:00-14:00

Hvers vegna Lyfja?

Lyfja er leiðandi fyrirtæki í íslenskri heilbrigðisþjónustu með það að markmiði að auka lífsgæði og efla heilsu. Við rekum 42 verslanir hringinn í kringum landið auk Lyfju Heyrnar og lyfjaskömmtunar. Hjá okkur starfar öflugur hópur heilbrigðismenntaðs og sérþjálfaðs starfsfólks sem styður við viðskiptavini í þeirra heilsueflingu, vinnur að vellíðan og tryggir lyfjaöryggi. Við leggjum áherslu á faglega og hlýlega þjónustu og stöðuga nýsköpun.

Við leggjum okkur fram um að skapa vinnuumhverfi þar sem starfsfólk upplifir jákvæðan starfsanda, fær tækifæri til að þróast í starfi og nýtir hæfileika sína til fulls. Við bjóðum upp á öfluga fræðslu og leggjum mikla áherslu á gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs.

Starfsfólk Lyfju nýtur góðra kjara á vörum og þjónustu hjá ELKO, Krónunni, Lyfju og N1, sem öll eru hluti af Festi hf.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Hulda Margrét Erlingsdóttir, lyfsali á [email protected]

Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.

Auglýsing birt5. júní 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Norðurhella 1, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar