

Markaðsfulltrúi
Ert þú með auga fyrir góðu efni, brennandi áhuga á samfélagsmiðlum og drifkraft til að láta hlutina gerast? Við hjá Securitas erum að leita að hugmyndaríkum og framkvæmdaglöðum markaðsfulltrúa til að ganga til liðs við okkur.
Í þessu hlutverki færðu frelsi til að móta hvernig við sýnum og segjum sögur af starfseminni okkar, nýjustu öryggislausnunum og þeim sigrum sem við vinnum á hverjum degi.
Við leitum að manneskju sem bíður ekki eftir fyrirmælum, heldur sér tækifærin og grípur þau.
Helstu verkefni
- Efnissköpun og umsjón með samfélagsmiðlum fyrirtækisins.
- Yfirfærsla og samræming á útliti og viðmóti allra þátta í starfsemi fyrirtækisins.
- Þátttaka í gerð auglýsinga og umsjón með útgáfustarfsemi og öðru kynningarstarfi.
- Efnisgerð og textaskrif
- Skipulagning og framkvæmd viðburða fyrirtækisins, hvort sem um ræðir sýningar, kynningar eða innri viðburði.
- Náin samvinna með stjórnendum og teymum við að búa til markaðsefni
Við leitum að einstaklingi sem
- Býr yfir skapandi hugsun og frumkvæði
- Hefur menntun sem nýtist í starfi
- Hefur góðan skilning á markaðssetningu og markhópum
- Hefur kunnáttu í myndbandagerð og klippingu
- Býr yfir skipulaghæfni og getu til að halda á mörgum boltum á lofti í einu.
- Hefur gott vald á skrifuðum íslenskum og enskum texta
- Hefur góðan skilning á stafrænum markaðsmálum, leitarvélabestun (SEO) og hvernig auka má sýnileika vörumerkis á netinu.
Hvað bjóðum við?
- Einstakt tækifæri til að hafa áhrif á markaðsstarf og ásýnd Securitas
- Fjölbreyttan vinnudag þar sem engir tveir dagar eru eins.
- Skapandi og kraftmikið vinnuumhverfi með flottu fólki.
- Góða vinnuaðstöðu og spennandi starf þar sem þú hefur tækifæri til að setja mark þitt á markaðsstarf hjá fyrirtæki sem sérhæfir sig í hátæknibúnaði og þjónustulausnum.
Starfið hentar öllum kynjum sem eru með hreint sakavottorð. Við hvetjum umsækjendur til að skila inn umsóknum sem fyrst þar sem unnið verður úr þeim jafnóðum og þær berast.
Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál og er öllum umsóknum svarað. Umsóknarfrestur er til og með 11. júní nk.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Nína Auðardóttir, markaðsstjóri í síma 580-7000.
Íslenska
Enska







